hitt og þetta
Nú er aftur kominn mánudagur með öllum sínum kostum og göllum. Ég er glöð. Ég er ótrúlega ánægð með helgina, afkastaði miklu í garðinum sem lítur mjög vel út núna, á bara eftir að fara með fjóra eða fimm ruslapoka fulla af laufblöðum, illgresi og strjágreinum. Segið svo að maður sé ekki duglegur.
Alex tók til í bílskúrnum og ég og Atli stóðum yfir honum og vorum alltaf að segja honum að hann mætti ekki henda neinu þannig að hann var farin að setja ruslið í skápana sem tóku nú við miklu. Hann henti bara ruslinu, engu öðru og bílskúrinn er svo vel tiltekin að mamma og Þórður þið trúið þessu ekki, það liggur við að það sé hægt að koma tveimur bílum fyrir í hann núna.
Í gær fengum við svo góða heimsókn, Anna Sigga og Ragnar Stefán komu með Heklu krútt í heimsókn og svo komu líka Óli bróðir og Hlynur þannig að úr varð hin besta skemmtun. Krakkarnir og Óli fóru í sund og við hin í göngutúr í norðvestan gaddi og snjókomu en með sól á köflum. Skoðuðum nýju höllina og lóðina og bara hluta af hinu fallega Akranesi. Skemmtileg helgi.
Í morgun fóru Atli og Alex svo í íþróttir fyrir vinnu, útiæfingu uppi í skógrækt, svakalega hressir þessir drengir. Komu hér heim kl.7 eftir klukkutíma æfingu með adrenalínið á fullu.
ÉG vil nota seinustu orðin til að senda góðri vinkonu styrk og strauma en náin ættingi hennar stendur í stöngu núna og við hugsum til þeirra og vonum að allt gangi vel hjá ykkur elsku vinir. Megi guð vera með ykkur.....
knús og kram
Helga


5 Comments:
Ohhhh dugnaðurinn í ykkur!!!
Ég hefði sko verið til í að kíkja með strákunum til ykkar en ég hugsa að ég geri lítið annað en að læra og vinna fram yfir kosningar.
Bið að heilsa ykkur öllum!!
Þið eruð ekkert smá dugleg!!!
Kær kveðja til ykkar allra....
Heiðrún
Þið eruð svei mér dugleg. Já það væri gaman að sjá bílskúrinn, seinast þegar ég leit inn í hann var bíldrusla þar sem vinur Atla á.
Þið komið kanski stórum hluta búslóðarinnar í skúrinn?
Bestu kveðjur.
Ja við komumst eflaust langt með að koma dótinu okkar fyrir en Valli sagði að það væri allt í lagi að leyfa okkur að setja eitthvað inn í bílskúrinn hjá honum yfir sumartímann. Annars var ég að auglýsa í póstinum kemur á fimmtudaginn um geymslupláss. Kannski kemur eitthvað út úr því.
En þetta er nú líka mjög rúmgóður og flottur bílskúr, við getum náttúrulega ekki fyllt hann alveg því þið verðið að komast í vaskinn og slátturvélina og alls kyns dót sem þar er.
Bestu kveðjur
Helga
Til hamingju með afmælið Helga mín. Vonandi verður dagurinn góður;)
Skrifa ummæli
<< Home