mánudagur, apríl 16, 2007

Afmæli, mömmumorgnar, veikindi.....

Loksins gef ég mér eina mínútu tíma til að blogga. Margt skemmtilegt búið að gerast hér á Íslandi og þetta er allt að komast í fastar skorður hjá okkur. Systkini mín, Nína og foreldrar Þórðar hafa reynst mér einstaklega vel. Alveg frábært að hafa góða að. Þið eruð yndisleg.

Nú vinnan er bara alveg að gera sig, ég fíla mig bara vel þarna inn um sálufélaga mína. Ég hef alltaf verið frekar gömul sál og það er bara eins og að koma heim að ganga þarna inn. Góður starfsandi, góð mönnun, skemmtileg umgengni á milli einstaklinga og bara já, gaman. Ég er líka mjög ánægð með pössunina fyrir drenginn, hann er kátur þegar hann fer í pössun og kátur þegar ég kem að sækja hann. Það er stutt að fara með hann og stutt þaðan svo í vinnuna, ég geng þetta allt en nota nú bílinn hans Atla í eitthvað stúss, eins og að safna undirskriftum, stússast í skriffinsku og veseni. En það er gaman að búa á Akranesi, allir þekkja mann og það er einhvern veginn bara notalegt, knúsa alla úti á götu, fólk að spyrja um mann og mér finnst bara mörgum vera annt um mig. Hugguleg tilfinning. Auðvitað þekkir maður svo sem ekkert fáa hér, ég viðurkenni það alveg....

Barnið er með 39 stiga hita og svo óvær svefninn. Hugsanlega eyrun, ætla að panta tíma hjá sérfræðingi í Eyrnaveseni hér á Akranesi og vonandi fæ ég bara góðan tíma hjá honum.

Ég er á fullu að kynnast nýju og skemmtilegu fólki hér á Akranesi og það er sko af nógu að taka, eins og ég hafi nú ekki vitað það. En það er skemmtilegt að kynnast fólki því oft á maður ekkert endilega mesta samleið með "gömlu" góðu vinum sínum, vonandi verður enginn særður með þessum orðum mínum en ég hef bara sérlega gaman af því að víkka sjóndeildarhringinn. Ég skellti mér á mömmu morgun hér á Akranesi, þeir eru haldnir í hvíta húsinu sem er gamli iðnskólinn, á móti Hinna rakara þeir sem eru eitthvað kunnugir. Nú og ég verð nú bara að segja að þarna voru komnar konur á ýmsum aldri (allar þó yngri en ég) með börn á ýmsum aldri, öll þó yngri en Balthasar. Við vorum örugglega níu konur með börnin sín og sátum á sófastólum og sófum við svona lágt sófaborð. Þar voru hin ýmsustu tímarit og svo var boðið upp á kaffi. Nú ég saknaði einhvers staðar þar sem hægt hefði verið að láta börnin frá sér og leika við þau eða með þau. En þess var hvergi kostur. Það var að vísu leikfangakista en hún var lokuð og bara til hliðar við allt þetta prógram. Eftir á að hyggja verð ég að segja að þetta var hinn ágætasti slúðurhittingur. En mömmumorgnar eru í mínum huga eitthvað annað.... Nú ég gefst samt ekki upp og ætla að fylgjast með hvernig þessir morgnar þróast eða eru yfirleitt því eflaust var þetta eina skipti sem ég hef mætt eitthvað óvenjulega lélegur mömmumorgunn. Þannig að kannski kemur einhver stjórnandi sem sest niður og hváir eftir vandkvæðum mæðranna og verður þeim þar eitthvað innan handar eða getur amk bent þeim á hvar hægt væri að nálgast aðstoð. Nú og svo væri um að gera að hafa eitthvað einfalt, þroskahvetjandi fyrir börnin, á þeim aldri sem þau eru sirka á, kannski bara hluta af morgninum því vissulega er gaman fyrir mæður að snatta saman. Ég læt ykkur fylgjast með.

Prinsessan á heimilinu á afmæli í dag, hún bakaði köku í gær og ég gerði kremið á kökuna sem hún fór með í skólann. Þetta er svo spennandi, nú og svo eru pakkar frá Oma og Opa og vinkonunni Romina frá Detmold þannig að það verður spennandi að vakna í fyrramálið við morgunverðarborðið.... Reyndar engin kaka eins og mamma var heppin að fá EN SAMT... TIl hamingju með daginn elsku dúllan okkar.....

8 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ elsku Nína og til hamingju með afmælið þitt.Hérna er bara sól og blíða og stelpurnar busluðu í lauginni fyrir þig úti í garði í dag.Kær kveðja frá Stadtlohn

9:02 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með daginn Nína. Helga þú finnur þér alltaf e-ð sniðugt til dundurs. kv. Hildur

2:03 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Innilegar hamingjuóskir með daginn í gær Nína.

Leiðinlegt að hafa ekki náð að hitta þig Helga á meðan við vorum á Akranesi, týpískt að lenda í svona vandræðum eins og gerðist hjá okkur þennan morgun. Við kíkjum næst til ykkar í nýja húsið :)

Ég held að þessir mömmumorgnar hafi lítið breyst frá því að ég var með krakkana mína í þessu, maður sat og kjaftaði og kom með sitt eigið dót svo börnin gátu leikið sér. Mér fannst langskemmtilegast þegar við tókum okkur nokkrar saman og hittumst í heimahúsi. Mér finnst það eigi að vera fræðsla og einhver sem er yfir þessu sem gæti svarað ósvöruðum spurningum mæðra um barnauppeldi og annað tengt ungabörnum.

kær kveðja Christel

12:08 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir kveðjurnar fyrir hana Nínu mína, hún verður örugglega rosalega fegin að þið þarna úti öll sömul nýtið nú góða veðrið fyrir hana. Hún er hér enn í vetrarúlpunni sinni, með húfu og oft fara regnbuxurnar með í skólann.

Já maður lætur sér nú ekki leiðast, ég er nú ekki þekkt fyrir það held ég.

Ég er sammála þér með þessa mömmumorgna Christel en það er kannski betra að enginn sé yfir þessu einmitt á Akranesi heldur en að einhver finnist hann vera píndur til að vera þarna hjá mömmunum og hefur engan áhuga! Við sjáum hvernig þetta þróasst. Það er einmitt mikil þörf á umræðu í svona hópi að mínu mati, um næringu, hreyfingu, svefn og uppeldi almennt.

kv.
Helga

12:57 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með afmælið. Tengdamamma mín á ekki orð yfir hvað stúlkan er prúð og skemmtileg og vel upp alin...kannski þú sért bara best til þess fallin að vera með fyrirlestra um barnauppeldi í mömmuklúbbum;)
Hlakka til að hitta ykkur fljótlega í júní.

3:04 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég vildi bara segja "HÆ"!! ;o)

Heiðrún

3:15 e.h.  
Blogger Karen said...

Takk fyrir síðast, alltaf jafn gaman að hitta ykkur öll :)

1:42 e.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Hver sér eiginlega um þetta þarna?!? Er það bara einhver gúrka?

11:14 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters