sunnudagur, maí 06, 2007

Það er nú meira

Nú er aldeilis búið að vera mikið að gera hjá okkur. Alex kominn heim, byrjaður í vinnunni og líkar vel. Við búin að aðlagast öllu aftur eftir að Alex kom, það er ekki laust við að það séu miklar breytingar við það að fá manninn sinn heim en það er yndislegt.

Í gær var mikið að gera hjá fjölskyldunni, Nína tók þátt í landsbankahlaupi á Akranesi og stóð sig rosalega vel. Alex hljóp með eins og honum einum er lagið. Svo var haldið heim á leið þar sem núverandi húsmóðir á Jörundarholti 15 tók aldeilis til hendinni í garðinum og áfram gengur það í dag. Gaman að þessu, hlakka bara til að eignast minn eigin garð. Alex ætlar að taka til og þrífa bílskúrinn því gámurinn er kominn, enn vantar okkur pláss fyrir dót þannig að elsku lesendur ef þið þekkið einhverja hjartagóða manneskju sem á pláss í bílskúr þá endilega látið okkur vita, þetta verður ekki í langan tíma, bara í nokkrar vikur til mánuði þar til við tökum dótið inn í húsið okkar.

Seinnipartinn í gær fórum við svo í bíltúr upp í borgarnes þar sem við fengum okkur með ömmu Lillu og Atla í fararteskinu að borða og ís. Gaman gaman, það var svo yndislegt gluggaveður og gaman að sýna ömmu lóðina okkar og svona að þetta var bara mjög vel lukkaður laugardagur. Svo er bara að sjá hvað sunnudagurinn ber í skauti sér.

Lifið heil...
ykkar Helga

2 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Já það er svei mér nóg að gera hjá þér og ykkur!!

Það mætti ef til vill henda einhverju úr bílskúrnum? Kanski skápunum sem krakkarnir eiga, ég veit ekki?

Balthasar er komin í perudraslskúffuna, hann er pottþétt ánægður með þessa!

7:08 f.h.  
Blogger Helga said...

Það er víst óhætt að segja það að það sé í nógu að snúast. Svo gerði Alex meira segja lista todo fyrir mig þessa viku, ég held ég verði bara skrifstofudama.

kveðja Helga

10:49 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters