miðvikudagur, apríl 25, 2007

veikindi

Nú er það ljótt, Balthasar litla krútt þurfti að fara á sýklalyfjakúr útaf massívri eyrnabólgu, ekki gaman það en hann svaf ekki nema hálftíma í einu á nóttunni og grét útaf verkjum. Ég er að fara með hann aftur í dag til að láta skoða í eyrun. Annars er ég sjálf líka svo rosalega slöpp búin að vera og er enn að það er ekki nokkru lagi líkt. Vona bara að ég verði búin að hressast fyrir helgina en ég er á helgarvakt og bakvakt alla helgina.

Við bíðum spennt eftir Alex, að hann komi loksins heim þessi elska. Þá kannski getur maður loksins farið að láta grafa fyrir sig á lóðinni. ÉG er búin að fara all oft í skoðunarleiðangur í nýju götunni minni bara til að átta mig á því hver sé nágranni.

Jæja, ég ætla aðeins að leggja mig áður en ég fer með prinsinn á heilsugæslustöðina,
ykkar Helga

5 Comments:

Blogger Systa said...

Góðan bata hjá ykkur Helga mín, söknuðum þín á mánudaginn,
kv Systa

12:31 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Já ég var nú heldur betur ónýt yfir því að koma ekki til þín Systa, við tökum þetta tvöfalt næst!!! En ég er bara í vandræðum með heilsuna eins og er, fékk sýklalyf í dag til að hressa mig aðeins við.

Kv.
Helga

2:54 e.h.  
Blogger Frú Sigríður said...

Hæ, vonandi eruð þið að hressast :)

Þið þurfið ef til vill tíma til að aðlagast íslensku veðráttunni? En það eru allir búnir að vera með pest í kringum ykkur heima svo það er ef til vill ekkert skrítið að þú hefur smitast.

Góðan bata elskurnar :)

Kveðja úr blíðunni hér.

3:05 e.h.  
Blogger Karen said...

Æjæj en leiðinlegt að heyra þetta vonandi fer ykkur að batna!!
Heilsukveðjur

3:21 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vonandi lagast tetta nú fljótt....tad er svo erfitt ad vita af tessum elskum kveljast og svo geta tau ekki einu sinni tjád sig um tad!!!

Góda helgi Helga mín!

Bestu kvedjur,
Heidrún

9:27 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters