miðvikudagur, apríl 04, 2007

Komin á Jörundarholtið

Jæja þá erum við komin, það gekk allt vel á leiðinni, alveg vonum framar. Enda alveg yndisleg börn sem við eigum. Nú erum við búin að aðlagast því fyrsta, ég búin að vera tvo daga í vinnu og Blathasar í pössun hjá Óla og Nínu og Boggu/Sveini og Nínu, alltaf gengið eins og í sögu, vonum bara að það haldi áfram eftir að við byrjum hjá ömmunni í næstu götu í pössun. Hef mjög góða tilfinningu fyrir þessu. Bara allt spennandi.....

3 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Velkomin heim elskurnar:)
Þetta á örugglega eftir að ganga vel allt saman, ég get trúað að það hafi verið nóg að gera fyrstu dagana.

Kveðjur úr blíðunni hér, mamma.

9:16 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ. Gaman að heyra frá ykkur. Þið eruð bara strax kominn inn í lífið á Íslandi :)
Hlakka til að heyra meira og hitta ykkur í sumar.
Kveðja úr vorinu
Inga Björk

10:05 f.h.  
Blogger Sigríður Dögg Auðunsdóttir said...

Velkomin heim elsku Helga.
Gaman væri að fá að hitta ykkur öll næst þegar þið eigið lausa stund í höfuðborginni. Ég er viss um að Diljá og Nína hefðu gaman af því að hittast þótt þær muni eflaust lítið af sínum góða vinskap frá því á Fálkagötunni/Dunhaganum.
Gangi ykkur vel á nýju heimili.
Innilegar kveðjur
Sigga Dögg og fjölskylda

7:00 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters