miðvikudagur, maí 02, 2007

Lífið á Akranesi

Það er búið að vera smá törn hjá mér í vinnunni núna, ég skil bara ekkert í því hvað maður verður þreyttur á því að hlaupa allan daginn. Ég er mjög ánægð í vinnunni, líður vel og finnst gaman að vinna. Bara leiðinlegt að vera að vinna þegar Alex kom á föstudaginn, það hefði verið gaman að eyða saman kvöldinu og spjalla og svona. En hann er nú kominn til að vera þessi elska þannig að okkur gefast nú kannski nokkrar mínútur síðar til að spjalla. Ég var svo að vinna alla helgina og á 1.maí og nú er hans fyrsti dagur í vinnunni. Það verður gaman að heyra í honum eftir vinnu hvernig hefur gengið. Hann fékk bílinn hans Atla til að komast til vinnu, það verður sennilega gangurinn þar til bíllinn okkar kemur til landsins.

Á mánudaginn var mælt út fyrir húsinu okkar þannig að nú má fara að grafa, gröfumeistarinn okkar sagðist geta byrjað í lok þessa viku eða í byrjun næstu þannig að nú er þetta allt að fara að gerast börnin góð. Þeir sem vilja geta kíkt á lóðina okkar sem er Skógarflöt 26 alveg fremst í miðjukaflanum í götunni.

Því miður þurfti ég að sleppa mömmumorgni í dag því ég hreinlega nennti ekki að fara út í rigningu og læti gangandi alveg lengst niður á neðri skaga, er letin nokkuð að fara með mann í ógöngur??? Það er samt svo mikilvægt fyrir litla krílið að komast aðeins út í ferska loftið og að hitta aðra grislínga. Ég fer í næstu viku.

Jæja ég bið að heilsa í bili og minni á myndasíðuna www.familieeck.blogspot.com
lifið heil

4 Comments:

Blogger Frú Sigríður said...

Til hamingju með að vera byrjuð á byggingarframkvæmdum, hálfnað verk þá hafið er!

Gaman að heyra í þér áðan. Bestu kveðjur úr sólinni :)

1:58 e.h.  
Blogger Karen said...

Ég tek undir það, til lukku með að vera byrjuð. Þú ert nú alltaf svo drífandi að ég held að þú megir sko alveg sleppa við göngutúr í rigningunni.

2:16 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að heyra að þér líka vel í vinnunni og vonandi verður það sama uppi á teningnum hjá Alex!!

Heiðrún

6:28 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hæ og takk fyrir kveðjuna.
Æðislegt að Alex sé kominn og farin að vinna, allir á fullu.

Hér er sól en á morgun á víst að rigna......loksins!

Gangi ykkur vel. Við komum 19.7 til landsins og keyrum beint heim. Spurning um að koma við og heilsa upp á þig í leiðinni :)
Verðum í bandi

Inga

10:53 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters