föstudagur, maí 11, 2007

Hjálp

Hæ hæ,

í gær átti ég afmæli, takk fyrir kveðjurnar, þetta varð hinn skemmtilegasti dagur, fékk fullt af gjöfum og fullt af heimsóknum, takk fyrir þetta allt kæru vinir og fjölskylda, þið eruð yndisleg.

Hjálp... við vorum að senda bílinn okkar með Eimskip til landsins og í bílnum voru hlutir sem Alex þurfti að nota úti eftir að gámurinn fór og hlutir sem hann taldi sig þurfa hér áður en gámurinn kæmist í okkar hendur. Alex fór í vikunni að sækja bílinn og viti menn, það var búið að hreinsa bílinn af þessum fínu hlutum. Vantaði keppnishjólið hans, tvær borvélar og eitthvað fleira.....
HVAÐ ER Í GANGI..... Við ætlum sko ekki að láta þetta yfir okkur ganga, það virðist vera sem að í kring um flutninga sé skipulögð glæpastarfsemi, bílar séu opnaðir af starfsmönnum Eimskip með lyklum og hlutir sem verðmætir eru teknir út! HALLOOOOO Mikil sorg og reiði ríkir á heimilinu þess vegna þessa dagana og sérstaklega hjálparleysi, vonleysi og bara ótrúlega mikil furðan. Hvernig getur svona lagað gerst. Það er ekki trygging fyrir skemmdum af völdum veðra á sjó sem maður þarf að tryggja sig gegn heldur gegn þjófnaði starfsmannanna!!! Hvaða trygging bíður upp á tryggingu við þjófnaði sem er gerður með bíllyklinum? Fáránlegt. Sem betur fer á ég góða frændur innan Eimskips sem vonandi geta kippt þessu í liðinn, bætt okkur hlutina eða já bara fundið hlutina! Kannski hefur einhver tekið hlutina í misgripum úr bílnum okkar sem var læstur í gámi á leið yfir hafið? Eða einhver tekið hlutina því þeir mundu annars hristast svo mikið og skemma bílinn á sjó en eiginlega er það í skilmálum að flytjandi taki ábyrgð á því að hlutir séu rétt pakkaðir og því ekki starfsmannanna að ganga í læstar hirslur og raða fyrir mann. Nú og svo er það næsta áfall.... Maður borgar jú flutning á bíl, en maður þarf að borga aukalega fyrir það sem er í bílnum, það sem flyst í bílnum.... hvernig stendur á því að maður þurfi að borga fyrir flutning á t.d. kassanum sem maður ætlar að senda og líka fyrir innihaldinu í kassanum, kommon!!! Er einhver að grínast í okkur..... Það liggur við að maður fari bara aftur til Þýskalands.....En sem betur fer eigum við góðfélaga sem vonandi ná að hjálpa okkur. Takk fyrir það,

Er þetta ekki efni í stórfrétt í fréttablöðum landsins????

6 Comments:

Blogger Karen said...

Fyrst af öllu til hamingju með daginn í gær elsku Helga!!!
SVO.....
Djö...glæpamenn eru þetta!!!
Ótrúlegt alveg hreint.
Gott hjá ykkur að reyna að fá þetta bætt, alveg með ólíkindum!!

3:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Vá, ég er algjörlega kjaftstopp!!
Mér finnst þetta svo fáranlega ótrúlegt að það nær ekki nokkurri átt...

...í blöðin með þetta Helga....í alvöru!!!

Heiðrún

4:07 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég stórsé eftir að hafa ekki haldið dagbók um allt ruglið sem við fórum í gegnum í sambandi við flutningana, það hefði sko farið beint í blöðin! Það er greinilega allt búið með "þetta reddast" á Íslandi, bara tómt klúður!
Sem sagt, punkta hjá sér allt vesen og ekki láta Eimskip komast upp með þetta.

5:12 e.h.  
Blogger Rokkarinn said...

Djöfulsins skítapakk!!! Ekki bara blöðin... Vikan og Nýtt líf og allt það líka!

7:25 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hlutirnir finnast ekki hjá Eimskip, það er ekki eins og að við séum eitthvað hissa á því!!!

Best að gera þá eitthvað í málunum...

kv. Helga

2:34 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ertu ekki að grínast? En fyrst af öllu, til hamingju með daginn....verð að setja þig inn á afmælisdagatalið mitt ;)

Þetta er nú bara alveg ótrúlegt. Voru þessi hlutir, sem voru í bílnum, ekki skráðir fyrst að þið þurfið að borga fyrir þá? Nei, ég er líka kjaftstopp, á ekki til orð!

Vona það besta og ég myndi fara með þetta í blöðin, ekki seinna en strax.........

Hafið það nú samt gott og "alles wird gut"

Kveðja, Inga Björk

10:33 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters