föstudagur, janúar 30, 2004

Þá er komin helgi. Það er alltaf gaman því þá kemur Alex heim í heiðardalinn. Búið að gera við bílinn og allt í góðu standi. Þetta verður engin þrif eða tiltektar helgi, ekki heldur pökkunar helgi. Heldur bara gesta- og afslöppunarhelgi.

Nína er búin að vera mjög dugleg að vera úti að leika í dag og í gær. Það er svo gaman í snjónum. Auðvitað eru Þjóðverjar ekki eins duglegir að keyra í hálku og Íslendingar þannig að það er voðinn vís í umferðinni. Þar sem ég er alltaf á ferðinni í vinnunni, þá verð ég að hafa varann á því ökumenn eru óútreiknanlegir í hálkunni. Það er nú þannig að snjórinn hverfur fljótt af aðalgötum en slæmt er í litlum hliðargötum þar sem búið er að ryðja snjó og bílar eru hægri vinstri og það er ekki hægt að mæta bíl en maður mætir auðvitað bíl í hálku. En sem betur fer gekk allt vel og ég gleðst yfir fríhelginni minni.

Ég var nú frekar hissa á því hve lítil umræða skapaðist útaf þessum svaka frásögnum hans Óla í gær á blogginu hans en það er eins og hjá honum Kristleifi þegar hann talaði um trúmálin, fólk vill ekki taka rökstudda afstöðu í svona umdeildum opinberum málum.

JÆja ég óska öllum góðrar helgar og Þóra góða skemmtun á þorrablóti Íslenskudeildar ´Háskólans....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters