HANN Á AFMÆL´Í DAG, HANN Á AFMÆL´Í DAG, HANN ER TUTTUGUOGSEX ÁRA HANN ÓLI, HANN Á AFMÆL´Í DAG.
Innilegar hamingjuóskir á afmælisdeginum þínum. Hann er að fara á Kiss tónleika í maí...... Já hann er að fara til Ástralíu á Kiss tónleika, er svona í lagi???? Ég bara spyr???
Nei ég fer ekki með, hann bauð mér ekki!!!
EN ég hef líka nóg að gera að vera atvinnulaus og koma heimili mínu í réttar horfur þar sem ég er nýflutt með minni litlu fjölskyldu. Já svona er þetta, það var nú líka ekki ódýrt að flytja. En við höfum nú ekki áhyggjur af því.
Í gær var fyrsti skóladagurinn hjá Nínu í nýja skólanum. OG enginn heimalærdómur, já mamma sagði hún, ég var sú eina sem ekki þurfti að læra. Nú ég skildi ekki neitt, já hún fékk gjafakort í afmælisgjöf frá kennaranum. Ég hélt kannski eitt skitpi í sund eða eitthvað svoleiðis, en viti menn, já gjafakort upp á að sleppa heimalærdómnum einn dag. Hver hefur vitað betri afmælisgjöf, og hún auðvitað á fyrsta deginum notar gjafakortið, í staðinn fyrir að reyna að sjá hvort hún þurfi að læra eitthvað nýtt sem þau eru búin að fara í gegnum hér í skólanum en hún í sínum gamla ekki byrjuð á. Svona eru börn, sjá aldrei neitt vesen í hlutum. BAra taka málunum eins og þau eru. Maður þyrfti að vera eins og barn stundum. En maður var barn og nú er maður fullorðinn. Eins og hann Hlynur frændi minn, systkyni mín og Hlynur fóru með Agga í keilu á 50 ára afmælisdegi hans og Hlynur vann, þá dansaði hann svona gleðidans, Atli bróðir minn sagði að það hefði verið yndislegt að sjá hann.
JÁ GLEÐIDANS, ÞAÐ ER MÁLIÐ.....
Jæja ég ætla að fara að mála núna, ekki sama vegginn og í gær, heldur litla vegginn þar á móti þar sem maður fer niður í kjallara. Svo ætla ég að byrja á hurðunum á morgun.
Mamma er búin að panta flug fyrir sig og ömmu lillu til okkar í heimsókn í sumar. Þær fljúga á Amsterdam með flugleiðum og koma í lok júní og verða í tvær og hálfa viku. Ef einhver vill kíkja þá er nóg pláss. Ódýrt flug er á Niederrhein flugvöllinn, Munster eða Osnabruck, bara smá tipp. Bæbæ í bili, ykkar Helga
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
þriðjudagur, apríl 20, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home