laugardagur, apríl 17, 2004

Heyrðu hvað er að gerast hjá mér, þetta er páskafríið, já við erum enn í páskafríi, það eru svo langir páskar í útlöndum. Á mánudaginn er fyrsti skóladagurinn hjá Nínu í nýja skólanum.
Á föstud. 16.apríl átti ´Nína afmæli, hún er orðin 9 ára gömul svaka stór stelpa, það er nú ekki langt í að hún nái mér í vexti,,,,, Ég er alveg búin að gefa upp vonina um að ég vaxi meir. Bara kannski á einn veginn, en það vill maður aldrei en ég held ég sé bara sátt við að vaxa amk á einhvern veg, ahhhahh.
Við gerðum okkur mjög skemmtilegan dag, borðuðum morgunmat saman, með muffins í eftirrétt sem Nína bakaði sjálf eftir uppskrift frá ömmu Siggu matreiðslukennara. Áður en við borðuðum morgunmatinn fékk hún að opna allar gjafirnar sínar en þær voru nú ansi margar og góðar. Hún fékk línuskauta, hlýfar, spegil í nýja herbergið sitt, snúsnú band, sumarjakka, pringles (held hún hafi verið mest ánægð með þá gjöf), litla hjólreiðaviðgerðatösku til að setja undir sætið á hjólinu, litla fyrstu hjálpar tösku til að vera með í bakpokanum á hjólinu í hjólreiðaferðinni sem hún fer í með nýja bekknum sínum, hraðamælir á hjólið, bókamerki frá diddl músinni, söfnunarmöppu frá Diddl músinni, geisladisk, kjól á Baby born já það var þetta. Svo frá vinkonum sínum fékk hún bækur, þar með er allt upp talið.
Við skelltum okkur í sund með bestu vinkonunum og fórum svo á McDonalds, svaka flott maður. Eftir það fórum við til Pirjo og Martin og gistum þar. Þetta var mjög ánægjulegur dagur og svo spilaði veðrið með, sól og 22 stiga hiti, maður var bara að bráðna í sundi inni og á McD líka inni.

Svo þegar við komum heim í dag, þá leið manni svo vel, að vera loksins kominn með blómin sín og búin að kíkja í IKEA, mér finnst það svo heillandi bara skoða og kaupa eitthvað smá, við keyptum okkur ís og pulsu og kók, alveg með eindæmum girnilegt, hehe.

Nú ætla ég að fara að borða kvöldmat, hann Alex minn er búinn að hafa til mat, salat og brauð með rauðvíni, mjög heilsusamlegt. Á morgun ætlum við svo í hjólreiða og línuskauta ferð. Kannski maður reyni að redda Alex línuskauta, nú er hann sá síðasti í fjölskyldunni. Jæja elskurnar, góða helgi og bið að heilsa.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters