sunnudagur, apríl 18, 2004

Áfram Lúllli, Áfram Greta, já ég talaði við Gretu í símanum í gær og svei mér þá, ég held að Lúlli sé skyldur ömmu Lillu. Kannski er þetta bara blóðið í okkur Íslendingum. Hann Lúlli nefninlega var að skrifa kvörtunarbréf til Flugleiða, hmmmm, nei góður maður en ég held að svona einokunarstarfsemi sé ekki að spá endilega í vingjarnleika starfsmanna eða ánægju viðskitpavina. Mjög léleg pólítík í raun en þeir geta leyft sér þetta. Maður hefur ekki neina netþjónustu héðan frá Þýskalandi ef eitthvað er að netvefinum þeirra Flugleiðamanna nema í gegn um Ísland og þá er bara gjörusvovel að hringja til Íslands. Þeir mundu aldrei leyfa sér þessa hegðun við þýska viðskiptavini það er ég viss um.
En ég segi þetta með ömmu mína útaf því að hún gefst ekki upp, um daginn var hún búin að hringja all oft hjá bæjarstjóra Akraness útaf þvæí að planið fyrir framan húsið hennar er ekki steypt að fullu og hún gafst ekki upp, hringdi í tíma og ótíma og ég held að bæjarstjórinn hafi endað á að koma til hennar og kíkja á aðstæður, hvernig sem þetta mál endaði þá eru svona hlutir sem halda manni á lífi held ég, hlutir sem maður lætur sig varða og sem maður eyðir orku í að leiðrétta.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters