fimmtudagur, mars 11, 2004

Það á heldur betur eftir að verða skrýtið þegar við verðum tölvu, sjónvarps og mannslausar í þessari litlu skottuíbúð niðri í nánast þrjár vikur.... uhhuhhhuuhh. En við eigum eflaust eftir að heimsækja vini okkar á Mc Donalds og öðrum góðum æskustöðvum hvers einstaklings í nútíma þjóðfélagi. Svo er líka ágætur ítalskur veitingastaður hér rétt handan hornsin. Já en ég er alveg búin að vera að pæla og pæla í þessu í sambandi við sjónvarpsleysið. Ég horfi á hverju kvöldi á sjónvarpið, frá því að Nína er farin upp í rúm og þar til ég fer að sofa, sem er nú reyndar ekki mjög seint en þetta eru samt svona tvær klukkustundir og rúmlega það á hverju kvöldi. Hvað geri ég, jú lesa það er alveg á hreinu en ómægot, á hverju kvöldi, uppí rúmi ein... að lesa. Já þetta á eftir að verða upplifelsi. Ég get ekki einu sinni verið á netinu því það er ekki símatenging. Ég held ég noti kannski tækifærið og læri á gameboyið hennar Nínu, hehehe. Nei ekki heldur alveg minn stíll. Ég ætla að skrifa dagbók og reyna að komast betur að sjálfri mér. Ég ætla að fara að þrífa rækilega þarna niðri í dag og ég er hálf smeyk við það að ég muni finna RISA KONGULÓ eða eitthvað þaðanaf verra. Það eru þokkalega margir gestir okkar búnir að gista þarna en t.d. mömmu líkaði aldrei við það. Hún vildi frekar sofa á sófanum í stofunni!!! Það segir nú mikið. Já en það er ísskápur þarna og eld, já eldgömul eldavél, svona með gamaldagshellum og ég ætla nú ekki að fara að elda neitt mikið en það er kannski í lagi að gera pakkasúpu eða eitthvað annað pakkagúmmilaði. Já það er ekki eins og maður upplifi aldrei neitt.

En það er kannski líka sorglegt þegar maður hugsar til þess hvað maður í raun á erfitt með að vera sjálfum sér nógur án tækninnar í dag. Hver fer ekki einu sinni amk í tölvuna á daginn, ok ef maður á mikið af litlum börnum eða er í fullri vinnu eða eitthvað slíkt hefur maður ekki mikinn tíma en það eru örugglega margir sem eru gjörsamlega´háðir tækninni. Ég segi fyrir mig, ég gæti ekki lifað án þess. Nína ekki heldur, að hlusta á sínar söguspólur eða diskómúsík.

Það fer nú verulega að minnka dótið á heimilinu sem ekki er komið í kassa. Þetta er nú ekki skemmtileg vinna, að pakka og vera að flytja. Björg frænka og Hjalti með Pjetri Má, eru nú á leiðinni heim eftir að hafa átt heima lengi, lengi í Hollandi... þau fljúga til Íslands á laugard. Svo hitti ég Stínu hans Óðinns á netinu í gær og þau eru etv líka á leiðinni heim. Það er nú meiri fólskfjölgun sem verður á Íslandi við þetta. Ég sá þarna um daginn í morgunblaðinu að það eru ansi margir útlendingar sem eru búsettir á Íslandi, ég held um 5% og það er nú frekar mikið finnst mér. ég man þegar ég var ung stelpa og það kom útlendingur í búðina hans afa, þetta var STÓRFRÉTT.... en það er það ekki lengur og allt er vaðandi í útlendingum. Ég er nú sjálf útlendingur, en það er ekki gaman að vera útlendingur, maður vill að það sé helst litið á mann sem manneskju en ekki útlending... það eru fáir sem gera það. Jæja nú bið ég að heilsa í bili og ætla að fara að baka köku því Alex kemur heim í dag, þá verður hann svo glaður....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters