Ég er komin aftur. Já það var smá stopp hjá mér núna en það voru líka páskar, ég gat ekki séð en að aðrir hafi líka gert smá bænahlé. En við skelltum okkur í kirkju eins og kristnu fólki ber á páskasunnudag og það var nú bara fínt því ég fór altarisgöngu sem ég hef ekki farið síðan í fermingunni hjá honum Atla bróður og hann er orðinn tuttugu ára. Þannig að ég létti ansi á mér og vá munurinn, mér líður mun betur svona með hreina samviskuna. Við fórum út í garð áður en við borðuðum morgunmat á páskadag, ég hefði nú átt að byrja á því en það er siður í fjölskyldunni að leita að eggjakörfunni sinni úti í garði á páskadagsmorgni ef veður leyfir. Já og veður leyfði í þetta sinn, seinustu páska var leitað í stofunni á Reynigrund 24 og skemmtu sér allir mjög vel við leit því maður finnur yfirleitt annarra manna körfu en ekki sína eigin og ég held að Óli eða Atli hafi varla fundið sína körfu amk var þetta mjög fyndið. Þetta árið var þetta ekki svo fyndið en samt gaman að vanda. Já og eftir messu og göngutúr var bökuð misheppnuð kaka, ég hefði náttúrulega aldrei bakað hana ef ég hefði vitað að hún mundi misheppnast en þetta sýnir bara að góðri eldabusku getur líka mistekist og það er bara gott mál. En tengdapabbi var mjög ánægður með kökuna, hann er vanur því kona hans getur varla gert nokkra köku þannig að hún bragðist vel..... AMk eitthvað jákvætt. Dagurinn endaði með því að tengdapabbi bauð út að borða og allt varð gott.....
Á annan í páskum var því páskamaturinn hans Alex, þið megið geta hvað það var en mmmmmm það heppnaðist sko vel í þetta sinn..... Já og svona liðu dagarnir, við Nína vorum ekki lengi að klára nóa síríus paskaegg örugglega númer sex eða eitthvað, með legó frá ömmunum á Íslandi...
Í dag var svo opinberlegi fyrsti húsmóðurdagurinn minn á Wertchenstrasse 16, 48653 Coesfeld og viti menn, maður getur bara látið fara vel um sig, ég gerði mér auðvitað vinnu úr engu eins og gengur en það er bara fínt.
kæra fólk ég ætla að hætta núna og fara að horfa á sjónó. Bið að heilsa í bili, ykkar Helga
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
þriðjudagur, apríl 13, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home