Góðann daginn í dag, það skulum við svo sannarlega vona. Hef ekki áhuga á öðrum degi eins og í gær. Nína var áhugalaus og átti erfitt með að halda einbeitingunni yfir heimalærdómnum sem var svooo mikill í gær. Vesalings stúlkan en hún tók léttann tremma hér, ákkúrat þegar fólkið niðri kíkti við. Neyðarlegt, ég þoli það ekki þegar börnin eru að nota það gegn manni að vera óþekk þegar það er fólk hjá manni. Sumir eru ekki neitt smeykir við það og láta eins og enginn sé og skamma krakkann en ég geri það yfirleitt ekki. Ekki nema í ýtrustu neyð. Svei mér þá. En hér í Þýskalandi upplifir maður oft að bæði hjón eru að rífast, þegar maður situr kannski saman og er að spila eins og á laugardaginn þá fóru hér fram ansi kröftugar samræður á milli skotuhjúanna sem komu til okkar til að spila Doppelkopf,,,, þetta spil væri eitthvað fyrir þig Óli. Nema hvað hann er detective, sjálfstæður og er að rannsaka alls kyns þjófnað og eitthvað hjá fyrirtækjum sem ræður hann í vinnu. Svo þolir hann ekki þegar hans, þau eiga tvö börn, hringir í hann í tíma og ótíma, ákkúrat þegar hann er að horfa á eitthvert samsærið ganga þá hringir hún og hann svarar ekki, með á silent, en vibration og hún hringir aftur og aftur og lætur hringja út í hvert sinn...... SKiljanlegt þegar maðurinn kemur á laugardagskvöldi heim og fer á aðfararnótt mánudags, að maður sé spenntur að fá makann heim en nei hann kærir sig ekki um þetta. Allavega þá var þetta ansi neyðarlegt hér og ég var feginn þegar þau fóru....
Já og pökkun gengur hægt þessa dagana, það er nú líka allt í lagi, er svona hvað og hverju að fara að snúa mér að matarstellinu og fínu glösunum okkar.
Heyrðu, já ég bakaði marengsköku, heppnaðist nú ekki alveg nógu vel, hef verið með aðeins of lítinn hita á marengsinum en hann varð ekki alveg harður en það var allt í lagi. En mmmmm alltaf jafn yndislegt að borða góðar kökur. Kannski baka ég aðra köku á fimmtudaginn áður en Alex kemur heim og stend mig í húsmóðurhlutverkinu. HVernig væri það nú. Við erum búin að hafavhér nánast upp á hvern einasta dag í síðustu viku. Það er nefninlega verið að borða upp úr frystihólfunum. Já og hangikjöt með hvítir sósu, rauðrófum, LAUFABRAUÐI og alles,,,,, svo heitreykti laxinn með laxasósu og núðlum,,, mmmm.... svo læri, venjul.lax með mygluosti, það geri ég á föstudaginn og svo er bara rækjusalat og grafinn lax. Haldiði að maður hafi það fínt. EN það besta var laufabrauðið sem mamma og Þóra gerðu rétt áður en þau komu yfir jóli þessar elskur, takk fyrir það.
Já það er nú smá að koma svona tilkynningar um heimsóknir í sumar, Hulda og Eyþór með Óla koma, svo ætlar mamma að koma með ömmu og skilja hana eftir hjá okkur í tvær vikur eða svo. Svo förum við heim, en svaka óheppni að hjúkkuferðalagið sé ákkúrat þegar Alex tekur þátt í þríþrautinni, ég kem þá bara ein með Nínu....
Jæja best að taka smá til og svona, á morgun kl.7 koma verkamenn til að laga litla klóið, það á að flísaleggja og setja allt nýtt þar...gaman gaman. Snjókveðjur frá Detmold
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
þriðjudagur, mars 09, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home