Best að bæta nokkrum orðum við myndirnar. Það gengur ekki að hafa þetta svona dögum saman. Ég var nokkuð stolt af sjálfri mér eftir þessa maraþon hjólreiðaferð, sú fyrsta í sumar sem við fórum á laugardaginn. Já við eigum heima hér í all miklu sléttlendi en þurftum að fara að skoða íslenska hesta og þar af leiðandi vöru allar hæðir á vegi okkar sem eru hér í nánasta radíus. Frekar fúlt, ég reyndi þó að hemja mig við hann Alex sem var ótrúlega hamingjusamur að við skylum fara með honum í hjólreiðaferð en gekk illa. Nína spurði þegar við vorum varla komin út fyrir bæjarmörkin, HVAÐ ER MIKIÐ EFTIR. Ég sver það, það á örugglega eftir að vera skrautlegt með 27 svona eintök í bekkjarferðalagi á hjóli 23.-25.júní, omg.
Ég og Nína fórum í ferðalag, á sunnud. eftir að hafa keyrt Alex í vinnuna þar sem hann fór svo með þrjátíu manns til Madrid löggðum við af stað til tengdó. Það var ágætis tilbreyting og toppurinn á ferðinni var þegar við heimsóttum Maju, Önnu, Erik og Daniel, það var mjög gaman. Anna svo hress og kát, eins og þetta hefði nú ekki verið mikið mál að fæða hana Maju. Erik alltaf sama dúllan og Maja prinsessan í fjölskyldunni fullkomnar myndina. Gaman það.
Ég bíð spennt eftir fregnum af atvinnuumsókninni sem ég sendi á fimmtud. til sjúkrahússins, ætlaði nú að bíða fram á haust en þetta var svo lokkandi, gjörgæsla og svæfning, nánari lýsing fylgdi ekki. Hlutastarf og svo bara sjá hvað kemur út úr þessu.
Ég þarf að fara að æfa mig á gítarinn, verð að standa mig í þessu svo ég geti nú spilað með einhverjum þegar við Nína komum heim, ég er ekki neitt búin að æfa mig síðan á föstudaginn og í dag er miðvikudagur, say no more...
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
miðvikudagur, júní 02, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home