Hæ allir saman.
Hvað er eiginlega að gerast í stjórmálum á Íslandi. Ég er bara orðlaus yfir þessu öllu saman. Davíð Odds alveg að tapa sér yfir bræði á Herra Forseta Íslands og leifir sér að segja alls kyns óásættanlega hluti fyrir framan almenning. HVAÐ ER Í GANGI. Forsetinn getur ekki einu sinni mætt við hátíðlegt brúðkaup Dana Prins og konu. Sendir því konu sína eina með gjöf frá Íslensku Þjóðinni. Ég styð hann Steingrím hann sagði að Davíð væri gunga og drusla, vel til orða mælt. Það er eins gott að það sé ekki stríð og hryðjuverkasamtök á Íslandi þannig að þeir geti verið að eyða tíma sínum í að rífast og vera í skítkasti. Ótrúlegt að þetta séu fullorðnir menn, kosnir á þing af almenningi, til háborinnar skammar...
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
mánudagur, maí 17, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home