mánudagur, maí 24, 2004

SKEMMTILEG HELGI
Ég er nú alltaf hálf þreytt eftir svona stuðhelgar eins og undanfarnar helgar hafa verið hjá okkur. Ég finn að ég er ekki lengur sú yngsta og á erfitt ef ég fæ eitt hvítvínsglas of mikið eða eitt úsó of mikið eða hreinlega drekk vatn og fer of seint að sofa, það er seinna en tólf á miðnætti. Er maður ekki glataður djammari. Svei mér þá ég verð að koma til Íslands í æfingabúðir.... Það verður örugglega brjálað gaman að koma heim í sumar, ég hef á tilfinningunni að ég hafi ekki komið heim svo lengi þannig að fjórar vikur eiga eftir að verða góður tími til að ná upp öllu sem á eftir að ná upp. Hittast, fara í göngutúra, setja Nínu á leikjanámskeið og kannski í Ölver, ég segi svona. Ég fór nú ekki oft í svona stelpuferðalög en það var mjög gaman finnst mér amk svona eftirá.

Nína er aftur orðin kvefuð, ég hélt kannski að þetta væri ofnæmi og gaf henni eina væga ofnæmispillu en það breytir ekki neinu. Ég skil ekki með hana, hún er alltaf með hor í nös. Útstáelsi á krakkanum, svo fer hún oft illa klædd, svitnar og kólnar svo, þið þekkið þetta er það ekki.

Við ætluðum að stefna á Holland um næstu helgi, Hvítasunnuna en það verður sennilega lítið úr því þar sem ég tók stutta kynningu á bankareikning heimilisins, sjit. Sjáum hve léttúðleg við verðum hjónakornin. Einhverntíma hljótum við jú að komast aftur í plús eftir ans... flutninginn....!"#$#$%$$%&$=)((/( ok þá er það komið.

Það var nú ansi gaman með Matthiasi og Kristínu og börnum þeirra um helgina, við fórum í bæjarrölt, skruppum til Hollands, það er nú svo stutt að við erum kominn í bæinn Wintersvijk eftir 25 mín keyrslu. Þar var alveg svakalega skemmtilegur markaður en það var svo troðið að maður gat varla gengið svo ekki sé talað um að dröslast með þrjá krakka sem hafa minni en engann áhuga á svona löguðu omg. En það er alltaf gaman að koma til Hollands, skemmtilegur byggingarstíll og bara léttúðlegt fólk. Annars var nú frekar mikið af Þjóðverjum á svæðinu. Á sunnud. fórum við svo til Ahus sem er bær hér í nágreninu og þar var líka svaka stadtfest og stuð, allsstaðar sem við komum var stuð, ekki amalegt. Þau löggðu svo af stað heim á sunnud.kvöld um 18:00 og þá fórum við bara til hvíldar á sófann fyrst í byrjun en svefninn dróg okkur að sér. Nóg um það í bili,
ég minni hér með á afmæli Þóru systur minnar á sunnud. 30.5. en hún verður 24 ára. Gaman að eiga afmæli, þar til næst dúllíkrúll... Bendi hér með á skemmtilegar myndir af Atla Þór bróður mínum sem fékk tvenn verðlaun við útskrift úr FVA á föstud. stóð sig eins og hetja og á frásögn Óla af Kiss tónleikum sem hann var nýverið á í ÁSTRALÍU....seinómor

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters