fimmtudagur, maí 27, 2004

Að plana
Já það er alltaf svolítið erfitt að plana, eða ég ætla frekar að orða það þannig að það er auðvelt að plana en svo er annað mál hvort maður hafi möguleika á að gera eftir því sem maður planar. Eins og þessi helgi, hvítasunnuhelgin... já fyrst ætluðum við til Heusenst. en svo hugsuðum við, kannski við ættum bara að vera saman litla fjölskyldan og njóta nærveru hvors annars og slaka á, já förum í ferðalag, en í dag kom það í ljós að Alex er á leið til Madrid á sunnud. Svona getur þetta verið, maður planar og svo ganga hlutirnir ekki upp eins og maður óskar sér. Við tökum þessu bara eins og vera ber, gerum eitthvað skemmtilegt á laugardeginum og svo gerum við hitt þegar við eigum aftur möguleika á því.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters