Nú fer Óli bróðir í dag til Ástralíu, gangi þér vel kæri bróðir. Hlakka til að sjá myndir sem hann ætlar að taka og birta á blogginu sínu. Hann er svo mikill draumóramaður.
Þóra systir byrjaði að vinna í dag í Landsbankanum á síma, hún hefur unnið þar áður en þá bjó hún hjá okkur skötuhjúunum er við áttum heima á Dunhaga 18. Gangi þér vel í vinnunni elsku Þóra mín. Hún kláraði prófin sín í gær, til lukku með það.
Við fljölskyldan erum að fara í dag í heimsókn til Detmold til vinafólks okkar þar sem við munum halda upp á mitt afmæli og afmæli mannsins sem við förum í heimsókn til. Ég gerði hrásalat í gær, kartöflusalat í dag. Alex gerði sitt fræga Tiramisu, ohh það er svo gott. Þannig að nú er bara verið að leggja lokahönd á pökkun og þá er hægt að leggja í hann.
Held áfram á sunnud. engin pæling í dag bara leti í mér. Hlakka til að fara að skoða gítar á mánud. í bænum en ég fékk svaka mikinn pening frá systk. mínum, mömmu og ömmu í afmælisgjöf og ætla að kaupa mér gítar, gítarbók og hlaupadót fyrir afganginn.....Takk
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
föstudagur, maí 14, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home