föstudagur, maí 28, 2004

Gítarferill Helgu
Já gítarferill minn er loksins hafinn. Þriðji dagur frá gítarkaupum. Ég hafði það af að kaupa mér gítar hér úti í bæ, á hjóli notabene. Yamaha FG 413S Þjóðlagagítar eða Western gítar eins og Þjóðverjar vilja nefna hann. Hann er reyndar ljós á litinn og er með strengi 012 sem er ansk. erfitt að þrýsta á. En ég er búinn að æfa Wild thing og er þótt ég segi sjálf frá ROSA flott að spila það lag. SVo hef ég æft Allir Krakkar (C,G7) og Gamla Nóa (C, G7) og það gengur frekar hægt að skipta um grip þótt þau séu svona rosalega lík, gripin sko. Ég er ekki komin með blöðrur en er rauð og aum á vísifingri, löngutöng og baugfingri.

Ég læt ykkur fylgjast náið með þessu. Því miður var oriði fullt á námskeiði sem ég ætlaði að fara á fyrir byrjendur en ég fer bara næst í staðinn. Ég verð nú að láta það fylgja að ég held að Nína sé smá ábbó, hún vill alltaf líka spila, sérstaklega þegar ég er að æfa mig.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters