fimmtudagur, maí 20, 2004

Vatertag
Hann er haldinn hátíðlegur á heimilinu, eins og flest sem hægt er að halda upp á. Í tilefni dagsins keypti ég eina flösku af Úsó fyrir fjölskyldumeðlimi sem mega drekka áfengi og kom það verulega á óvart fyrir den Vater. Við borðuðum morgunmat úti á veröndinni okkar í 22 stiga hita og sól. Við erum svo heppin að hafa sól hér á morgnana en á eftirmiðdeginum er engin sól þannig að það er vel hægt að halda þetta út í hitanum. Það er svo sérstaklega skemmtileg stemming þegar maður getur farið að borða morgunmat úti. Eitthvað svo frjálslegt og náttúrulegt finnst mér. Ég er ekki frá því að ég hafi bara fengið innblástur...

En eymingja der Vater í dag, alveg búinn að vera á fullu að gera fínt á nýja heimilinu okkar. Hann er búinn að laga eitthvað í eldhúsinu, m.a. setja síðustu veggplötuna sem vantaði við vaskinn, laga glasaskápinn sem var búinn að vera skakkur. Svo setti hann upp spegil sem ég keypti í gær til að hafa á litla baðinu, niðri og setti hurðarhún á hurðina sem ég málaði í gær... Svo er hann núna að leggja lokahönd á að setja hurðar á skáp inni í vaskahúsi. Ég verð að segja það að ég er auðvitað mjög glöð yfir því að hann skuli loksins gera þetta en það sem hann blótar þessi elska. Ég held að ég sé hálf feginn að hann vinni ekki lengur við smíðar, svona mikið af neikvæðum orðum í einu, omg....

Svo kemur Matthias og KRistine í heimsókn á morgun með dætrum sínum....... ég er alveg að sofna núna, annað hvort verð ég að fara að leggja mig eða út að skokka, sjáum til hvað ég geri.... bæ í bili, árshátíðarhjúkkur, takið daginn rólega eftir allt stuðið í gær, ég þekki ykkur, það hefur örugglega verið mjög gaman hjá ykkur, takk fyrir að hringja Sigga,en við misstum af ykkur....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters