þriðjudagur, júní 08, 2004

ÞAÐ ER KOMIÐ SUMAR, DÆRÆRÆRÆRÆ.....
Það er víst óhætt að segja það, já 30 stig og sól, bara verst hvað ég þarf oft að snýta mér og Nína á sýklalyfjum. Við förum ekki í sund, það er slæmt.....
Hef kynnst svo áhugaverðri konu hér. Hún er að vinna við öndunarmeðferð fyrir hópa og einstaklinga til að komast nær sjálfinu í manni. Áhugavert ekki satt. Hef að vísu aldrei heyrt um svona en það er sama, alltaf að kynnast einhverju nýju. Þetta er svona líkamleg vinna í therapíu ef mætti kalla það.
Við hittumst í gönguhópnum, mjög gaman að tala við hana. Hún er sennilega nálægt fimmtugu og við ræðum um svona spiritual hluti, reynslu sem maður lendir í og hvernig maður nær að vinna úr því og hvað það færir manni og oft verður til breytinga á viðhorfi. Já ég frétti í gær af tengdasyni vinkonu tengdamömmu sem var læknir og lést 51 árs, sex barna faðir. Svo þykist maður eiga einhver vandamál.... Oft á maður ekki til orð yfir eigin lukku í lífinu. Bið ykkur öll vel að lifa :)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters