laugardagur, júní 05, 2004

OHHHH
Vorum í verslunarleiðangri, við finnum aldrei neitt sem við erum ánægð með. Ætli við verðum nokkuð komin með stóla og borð í eldhúsið fyrr en við flytjum til Íslands!!! Fórum í þrenns konar verslanir í dag. Sáum stóla frá 9 Evrum (ótrúlegt hvernig þetta er hægt) og uppí 200 Evrur stykkið. Okkur vantar bara venjulega stóla sem þægilegt er að sitja á og mega ekki vera dýrir. HAldið þið að við finnum eitthvað. Ég þoli ekki að kaupa eitthvað bara til að kaupa eitthvað. Þannig að nú fer ég af stað í næstu viku og reyni að finna einhverja stóla. Alex þarf svo að reyna að ákveða sig varðandi eldhúsborðið í skyndi, mig langar að fá svona borð til að sitja við í eldhúsinu sem er fast við vegginn og kemur rúnað á endanum. En hann vill frekar kringlótt... Sko við ætlum bara að nota þetta til að borða morgunmat, ekki neitt spes, bara fyrir morgunkorn og kaffisopann á morgnana.

Fórum upp með tölvuna í gær og hún er núna fyrir framan svefnherbergið okkar á efri hæðinni. Ansi huggulegt bara. Þá er bara eitt autt herbergi uppi, Alex vildi ekki setja tölvuna inn í það herbergi því hann er að vona að við náum að fylla í það á annan hátt(ég auðvitað líka). Og niðri er gestaherbergi með gestasófanum og konuherbergið með píanóinu og straugræjunum mínum..... ásamt saumavélinni að sjálfsögðu. Við erum alltaf að breyta, það er svo gaman að breyta, ég var ansi dugleg í því þegar ég var yngri, að breyta íherberginu ´mínu. Fá smá tilbreytingu í lífið....

Jæja, ætla aðeins að leggja mig, eins og Alex. Nína er voða góð, alveg búin á því af því að í gær fékk vinkona hennar Lisa að gista og þær sofnuðu ekki fyrr en um ellefu, hún er að horfa á sjónó. Góða helgi og hafið það huggulegt.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters