Furðulegur dagur
Hæhæ kæru vinir. Í gær var skrýtinn dagur. Ég var svo skrýtinn allann, daginn. Nei ég er ekki ólétt, nýbyrjuð á túr. Svo fórum við í hjólreiðarferð og allt gekk svona lala, ég alltaf eitthvað skrýtin, svona með höfuðverk og eins og ég þyrfti bráðum að æla og eitthvað. nema hvað þegar við komum heim, þá fór ég beint upp í rúm, tók eina paracetamól og steinsofnaði. Fjórum tímum seinna mældist líkamshiti minn 38,5 gráður. Ég fékk meira segja kuldaskjálfta og klæddi mig í mín þykkustu föt og fór upp í rúm með sæng og teppi yfir mér. Sofnaði og þegar ég vaknaði um klukkutíma síðar þá var ég í svitabaði. Þetta var svo furðulegt að ég á ekki til orð. En í dag er ekki neitt, kannski smá höfuðverk en ekki neitt til að tala um. Og þetta voru orð dagsins í gær.
Orð dagsins í dag eru hinsvegar Til lukku elsku mamma, hún vann málð á móti ríkinu vegna læknamistaka sem hún varð fyrir. Auðvitað kemur ekki neit upp í þann missi og þá erfiðleika sem maður upplifir en þetta er viss viðurkenning um að eitthvað hafi hent mann sem var ekki rétt. Ég samgleðst henni móður(mynd af henni) minni og fer með hele familien í eisdíle í kvöld, það er svo heitt að maður nennir ekki út að borða :)
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
mánudagur, júní 07, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home