Þýska Löggan
Það er nú allt eins í þessu blessaða samfélagi. Varð fyrir vægu áfalli niðri í bæ áðan. Verð bara að koma þessu frá mér. Þannig er mál með vexti að ég og Nína fórum í apótek til að sækja sýklalyf fyrir Nínu, komin með kinnholusýkingu. Við auðvitað á hjólum, það er besti fararmátinn hér í bæ. Við förum í Apótekið og svo þegar við erum að fara á hjólin okkar og leggjum af stað heim, ÖSKRAR LÖGREGLUMAÐUR Í ÁTT TIL MÍN. Ég stoppa auðvitað á hjólinu og segi alveg alhissa ertu að tala við mig. Hann alveg reiður, já hvað ég héldi eiginlega að ég væri að gera. (Ég var svo viss um að hér væri einhver meiriháttar misskilningur í gangi og bara sagði honum að ég hefði verið að koma úr apótekinu með dóttur minni og vissi ekki hvað væri í gangi) Hann ótrúlega pirraður, hvort ég hefði ekki tekið eftir neinu. Ég bara kom af fjöllum.... Nei hvað. Ja að allir í kring um mig væru fótgangandi. Já og hvað með það!!! Dóni!! *#$%&*** Þá varð hann ferlega kúl og spurði hvað ég væri búin að eiga heima hér lengi. Eins og það komi eitthvað málinu við. Ég bara skildi ekki í hvað þessi lögreglumaður var dónalegur. Var alvarlega að íhuga að fá nafn hans og hringja og kvarta undan honum. Djöflulsins dóni. Alveg öskrandi.... alveg þoli ég það ekki. Allaveg þá var málið að það má ekki hjóla á göngugötunni, maður verður að teyma hjólið. Það eru örugglega nýjar reglur því fyrir ca. 4 vikum fór ég með forvarnarlögregluþjóni sem var að kynna foreldrum barna í þriðja bekk umferðarreglur og sérstakar reglur í bænum fyrir hjólreiðafólk og þá sagði hann að það væri í lagi að hjóla þarna en fótgangandi vegfarendur hefðu réttinn og maður þyrfti að passa sig hvernig maður hjólaði. Ég geri sko mál úr þessu, það er alveg pottþétt.......
Ein í rembingsstuði.....
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
fimmtudagur, júní 03, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home