miðvikudagur, júní 30, 2004

Verslunardagar
jæja þá eru þær komnar elskurnar. Amma og mamma, hver annari meiri dúllan eru komnar heilar á húfi til okkar hingað í Coesfeld. Ferðin gekk svona lala, ég villtist á leiðinni heim frá flugvellinum í Amsterdam. Alveg týpískt, Helga mín, þetta er allt í lagi það er svo fallegt hérna. Jájá allt í lagi... mamma að drepast í mjöðminni, amma sullandi á sig alla ís af stressi við að borða svona smeðjulegan ís eins og hún hefur annars aldrei fengið!!!! Wot kan æ sei... Sorrý. Ég lét svo mömmu lóðsa mig í gegn um Holland, þá gekk þetta, þar til hún svo fór að blunda því hún svaf ekki neitt nóttina áður, af hræðslu við að missa af flugvélinni...

En eftir ánægjulegar fjórar og hálfa stundir í bílnum, þar sem lofræstingin var biluð ofan á allt annað,,,,, sviti, sviti, sviti.... þá komumst við þokkalega heilar á húfi hingað heim... sem betur fer.

En þær voru auðvitað mjög þreyttar þannig að við borðuðum og svo fórum við bara öll fljótlega að sofa. Allt gott með það að segja.

Svo fórum við útí bæ í dag og þær standa sig vel dömurnar í innkaupunum, ég meina allt hlutir sem ég gæti vel sætt mig við að eiga og það er nú alltaf góðs viti. Á morgun förum við svo í Ríl og ætlum að gá hvort búðin þeirra hér sé jafn góð og í Detmold. Gaman að vita hvað þær segja.

En ég verð að hæla okkur svolítið, þær eru svo hrifnar af húsinu okkar, gamla, litla húsinu okkar að maður fyllist bara svona foreldrastolti. Ánægð með það.
Nú erum við að horfa á leikinn, við héldum öll að Holland ætti eftir að vinna en það verða mjög líklega Portúgalarnir....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters