laugardagur, júní 12, 2004

Erfið byrjun
Já gítarferill minn er ekki alveg kominn í gírinn. Ég er ekki komin með sigg, bíð á hverjum degi eftir að siggið komi. Ég var dugleg að æfa mig í dag, er á fullu að æfa Stál og hnífur eftir Bubba, Em, Am, B7, C, G, já þetta eru gripin, er reyndar ekki með textann fyrir framan mig. Það gengur ágætlega, en vá, svo hlustaði ég á bubba sjálfan og omg hvað hann gerir þetta hratt..... Ég þarf að æfa skiptingarnar betur. Ég á bara ekki nógu skemmtileg önnur lög til að æfa mig, ég ætla að kaupa mér gítarbók á Íslandi, það er ekki gaman að skoða þetta á netinu, ég get ekki opnað öll lög til að ath. hvort grip og skiptingar í þeim séu mér til hæfis.

Nína tók þátt í hlaupi í gær, 800 metrar, svaka gaman. Þetta var í nærliggjandi bæ hér og við vorum í samfloti með nágrönnum okkar. Þeir komu svo í bjór og snakk í gærkvöldi, hresst og viðkunnarlegt fólk sem á tvö börn.
Á morgun ætlum við á svona sýningu það var jólagjöfin frá Alex, það verður örugglega gaman.

Við erum búin að vera dugleg að eyða í dag. Keyptum teppi, tvö stykki, fjóra eldhússtóla, horntölvuborð og það allt á einum degi. Héldum uppá það með ís og jarðaberjum með súkkulaðisósu og rjóma (taldi ekki kaloríurnar) mmmhhhmmmhh.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters