Veðurspá fyrir næstu daga
Það er búið að spá rigningu, þrumum og eldingum á morgun og 17 stiga hiti. Verra veður getur maður varla hugsað sér fyrir 27 krakka á aldrinum 9-11 ára sem eru að fara í hjólreiðabekkjarferð með kennaranum sínum og fylgdarliði. Hvað get ég sagt. Ég vona bara að eldingin hitti engan þeirra!!!
Nei kannski smá ýkt en omg, við höfum núna 22. júní og í Þýskalandi hefði maður nú getað farið fram á sól, 25-30 stig og ekki rigningu og vesen. omg,omg,omg. En Enginn er verri þótt hann vökni... og Nína er nú ekki lengur ÞAÐ kvefuð þannig að mömmunni ætti nú að vera nok sama.
Ég og Alex förum með á fimmtud. og föstud. sem fylgjarhjólreiðarhjálparmenn (vá langt orð) ég segi ykkur þá hvernig var hjá þeim....
Svo fer að styttast í að amma og mamma komi, bara vika!!! Hlakka til!!!
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
þriðjudagur, júní 22, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home