miðvikudagur, júní 23, 2004

Hjólreiðaferðin mikla

Krakkarnir lögðu af stað þegar það var ekki byrjað að rigna en allir voru voða jákvæðir og vongóðir um að það myndi haldast þurrt. Vonum það besta. Ég sagði við Nínu að ég vissi ekki neitt hvað ég skyldi gera þegar hún er ekki heima. Hún heldur að ég eigi eftir að vera alveg ómöguleg. En ég ætla að njóta þess sko að hún sé ekki heima í dag, fara að Walken með Nordic göngustaf sem ég fæ lánaðann hjá íþróttafélaginu og horfa svo á fótboltann með Alex í kvöld og hafa það gott. Ekkert vesen, það er nú ekki hægt að fara eitthvað því það er leikur í kvöld....

Alex er annars frekar slappur í öðrum kálfanum, svona stingandi verkur sem hefur verið til staðar af og til í nokkra daga. Hann tekur verkjapillur en finnst það ekki hjálpa neitt. Vonandi skánar þetta fyrir morgundaginn en þá ætluðum við að hjóla með bekknum í dagsferðunum.

Við fáum heimsókn frá Danmörku á föstudaginn, Arna Björk (9ára) sem var með Nínu á leikskólanum Mánagarði á Eggertsgötu frá 1 og hálfs árs aldri til 6 ára ætlar að koma í heimsókn með bróður sínum og foreldrum, það verður nú gaman fyrir okkur. Þau eru á ferðarlagi til Brussels á bíl.

jæja ætla að fara að njóta þess að vera ein, bæbæ

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters