miðvikudagur, júní 16, 2004

Jæja þá er maður kominn, eftir nokkra daga pásu. Stundum er það þannig að manni finnst maður ekki hafa neitt bitastætt að segja frá. Eiginlega er það vitleysa, maður getur alltaf sagt eitthvað eins furðulegt og það er. Stundum eitthvað meira bull og stundum eitthvað meira alvarlegt. Ég byrja á því að segja að númeraplattan aftan á bílnum okkar hangir á einni skrúfu. Já ekki merkilegt en samt. :) Svo er Nína ennþá kvefuð og ég fer með hana á morgun aftur til læknis, þetta fer að verða frekar alvarlegt mál því hún er hætt að mæta á sundæfingar :( Já og Eveline, tengdamóðir mín, sagði að Nína þyrfti að láta klippa af sér allt hárið svo hún væri ekki alltaf svona kvefuð, spes ekki satt, ég læt Nínu nú alveg ráða hvað hún gerir við hárið á sér en ég trúi ekki að hún klippi það af.

Ég er alveg hætt að vera með einhverja pælingu. Ein athugasemd í tilefni dagsins: Ég er farin að gera krossgátur, það er nú eitthvað síðan ég byrjaði á þessu... þýðir þetta að maður sé orðinn gamall? Ég man alltaf bara eftir gömlu fólki sem gerði krossgátur, hún amma Hulda og amma Lilla, aðrar persónur man ég ekki gera krossgátur!! Ekki segja neinum....

Vinkona mín frá Detmold er að koma í heimsókn til mín í dag og verður fram á föstud. með tvo drengi sína 3 og 1 árs, omg, ég vona að allt gangi vel og að Nína verði svol. meira hlýðin en vanalega ;Þ Hún er nefninlega byrjuð í gelgju, omg. Foreldrar eru hallærislegir, foreldrar eru gamaldags, foreldrar skilja ekki börn sín, foreldrar eru óréttlátir osfrv.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters