Brúðkaupsafmæli mitt og Alex í dag.....
Við erum búin að vera fjögur ár gift. Það er búinn að vera mjög ánægjulegur tími með hægðum og lægðum eins og gengur en ég er ánægð með að hafa gifst og óska mér framtíðar með Alex um ókomna tíma.
Það eru farin að berast svör við afmælisboði, það gleður mig.
Mamma og amma eru búnar að vera mjög duglegar að hjálpa mér í eldhúsinu og ég er búin að vera hjálpleg við að láta þær eyða peningunum sínum. Jöfn skipti ekki satt. Við fórum í gær í CentrO það var stórkostlegt að koma þangað. Loksins svona alvöru Moll hér í Germaníu, já margar flottar búðir og ákkúrat útsölubyrjun þannig að þið getið ímyndað ykkur hve mikla maníu við fengum. Eina sem var ekki gott var maturinn, svona lala, maður hefði átt að fá sér Makkdónalds en við klikkuðum á því.
Ef þið ætlið að kíkja þangað þá get ég lóðsað ykkur, veit núna hvernig maður kemst á 45 mínútum frá okkur þangað.
Í morgun fór ég í hjólaleiðangur með bekknum hennar Nínu, það er meira hvað maður er duglegur í sjálfboðaliðavinnu, þó það nú, eina vinnan sem ég er dugleg í nema heimavinnan......
Á nú eftir að ganga frá atvinnubissness málum mínum áður en ég fer heim, alveg þokkalegur höfuðverkur það....
nóg um það í bili, óska öllum alls besta
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
fimmtudagur, júlí 08, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home