Heimsóknir og Rigning
Þetta er nú búið að vera meira veðrið hér hjá okkur síðan gestirnir komu til okkar. Ekki gaman að hafa það svo kalt að amma er alltaf að frjósa, ofnarnir stilltir á fjögur til að fólk verði ekki ískalt. Hvað er að gerast hérna. Svo hlægja allir og segja ja þær eru nú vanar þessu veðri, og þær segja nei á Íslandi er svo gott veður núna.
mæðgur
Við verðum bara duglegar í búðunum í staðinn. Í gær fórum við til Munster eftir að hafa vaknað dauðþreytt eftir mikinn bjór, mikinn mat (fórum út að borða eftir mikla sultu og marmelaðisgerð ) og gott spjall. Munster er mjög falleg borg og gaman að ganga þar um, hefði ekki verið þetta ægilega rok og rigning ALLANN TÍMANN. Já þannig að við vorum ekki lengi að drífa okkur í bílinn og leggja fljótt af stað heim til Coesfeld og fá okkur heita samloku með skinku og osti. Það klikkar ekki. Svo héldum við mamma og Alex til Pirjo í útskriftarveislu og það var bara eins og er alltaf fyrir enskumælandi útlendinga í Þýskalandi, mamma beið bara eftir að hún skildi allt.... en það kom ekki. Já og við fórum svo um 12 til Detmold þar sem hótelið okkar var og fórum á krá og héldum a´fram að spjalla og drekka. Alltaf jafn gaman á þýskum pöbb, ég fer aldrei á pöbb nema með gestum, skil ekki hvað ég er léleg í þessu. En mér fannst mjög gaman að fara með mömmu og Alex svona einn dag í burtu, amma og Nína redduðu sér hérna heima. Gaman að mamma sjái Pirjo vinkonu mína sem hefur reynst mér betri en enginn!!!
Nú er að byrja afmælisskipulagninginn, ég er að hugsa um að bjóða bara ykkur öllum, og halda uppá það um verslunarmannahelgina, ég kem með minni familiu á fimmtudeginum og halda svo bara upp á dúndur þrítugsafmæli um þá helgi. Mundi þiggja komment á það, plís. Vona bara að allir hafi planað að fara á útihátíð á Akranesi, ntt Jörundarholt 15 í því sæluhúsi....
Frábært hjá Grikkjunum að sigra evrópumeistarakeppnina, verst að maður er ekki á Krít...
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
sunnudagur, júlí 04, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home