Það er komið sumar
Í gær var fyrsti sumardagurinn okkar hér, fór upp í 27, 5 stig á pallinum okkar. Já ég sver það ég þakka bara fyrir að amma og mamma þurftu ekki að upplifa svona hita. Svo var upp í 45% raki í loftinu og ótrúlega þungt andrúmsloftið. Þá líður manni ekki vel. Nína var svo heppin að fara með stelpunum í hverfinu í útisund og það er svona 50 metra sundlaug þar sem hún æfir líka sund. En sundlaugin er svo illa hirt, vatnið er svipað og í hreppslaug fyrir 25 árum, með grænni slikju á botninum. Nema hvað þegar Nína kemur svo heim eftir 5 tíma sundlaugarferð, franskar (sem alltaf er hægt að kaupa í sundi), sleikjóa og ís þá var hún öll í útbrotum. Hún er þá með sólarofnaæmi þegar hún er í svona drullugu vatni. Nú klægjar hana svo í þetta að við þurfum að fara í apótekið og athuga hvort þeir eigi ekki neyðarlausn fyrir okkur. Bringan, bakið, báðir handleggir og andlitið eru þakið bólum.
Á föstudag fóru amma og mamma heim, það er búið að vera mjög gaman að hafa þær. Við fórum í dagsferðir og í eina helgarferð og svo í stuttar verslunarferðir í bæinn hjá okkur. Nú tekur við heil vika í hvíld og á föstudaginn kemur svo Manfred til að halda upp á afmæli Alex með okkur og til að sækja Nínu en hún fer í frí til þeirra í fimm daga áður en við svo fljúgum til Íslands á fimmtud. 29. júlí.
Í gær fór ég með Alex að versla, gat ekki annað en haldið mínu striki, vön að vera að versla með ömmu og mömmu. Við náðum að eyða slatta af peningum, Alex keypti sér tvennar buxur og ég keypti pott fyrir ömmu, búin að gefa henni pönnu meðan hún var hér, skurðbretti sem ég átti og henni fannst svo sniðugt. Mamma vildir þú kannski líka svona lítinn pott?
Best að huga að veika barninu sínu, bið að heilsa ykkur, kveðja Helga og bóludóttirin
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
sunnudagur, júlí 18, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home