fimmtudagur, júlí 15, 2004

Það er ýmist í ökkla eða eyra.
Við mæðgurnar þrjár, ég, mamma og amma skelltum okkur til Kölnar í gær. Ég keyrði því að það er miklu fljótlegra (ef maður villist ekki) heldur en að fara í lest. Þsð gekk vonum framar á leiðinni hjá okkur enda með fyrirtaks stýrimann, hana mömmu sem er búin að læra að fara eftir korti. Skoðuðum dómkirkjuna, fórum meðfram Rhein (rín) niður í bæ og í ótrúlega hossökuferð með svona litlum bíl sem var með marga vagna í eftirdragi. Mjög spennandi. Við afrekuðum að kaupa ekki neitt sem við vorum ekki stoltar af en við bara fundum ekki neitt í mannmergðinni sem okkur leist á. Það er nú meira hvað það er mikið af ferðamönnum sem vorum að skoða þarna í gær, það var alveg greinilegt að þetta voru fleiri fleiri skólabekkir, þýskir sem og breskir. Allt troðið á dómkirkjutorginu.

Nína hringdi svo í okkur þegar við vorum á leiðinni heim til að segja okkur að hún hefði staðið sig svona vel í skólanum. Hún var að fá vitnisburð og fékk meirasegja einn í ensku. tvo í reikning og leikfimi, réttritun, lestri, myndment, þrjá í trúarbragðafræði og málnotkun. Frábært hjá henni. Hún var svo hissa að fá einn í einkunn að hún starði bara á blaðið þegar hún fékk það í skólanum. Gott mál það.

Mamma fór með í skólann í morgun og fékk að fylgjast með enskutíma, hún sagði að krakkarnir hefðu farið með faðirvorið á ensku og svo hefði kennarinn sagt sögu á ensku og þau skildu bara allt, eftir einn vetur í ensku. Gaman.... Jæja mamma var að koma ég ætla að fá mér kaffisopa með henni og amma var að koma fram líka þannig að það er spjallstund og svo í dag þurfa þær að pakka og fara í express shopping, þar sem á morgun er heimflugið.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters