FIMMTA VEIKIN
Heyrðu það var ekki sólarofnæmi sem Nína var með heldur fimmta veikin sem er vírus barnaveiki og gengur yfir á nokkrum dögum án lyfjainntöku. Við greiningu minnkaði snarlega kláðinn og öllum leið betur. Fegnar erum við að fá loks greiningu sem gæti át við, þótt að læknirinn hafi ekki alveg verið viss því að sólin hafði líka geislað á útbrotin og það villti fyrir honum. Samt sem áður átti Nína að vera heima það sem eftir er af skólanum. Sem kennarinn var mjög hissa á því að það höfðu önnur börn fengið þetta í bekknum og voru í skólanum allan tímann. Nína var óhress með að þurfa að vera heima síðustu skóladagana þar sem dagskráin er með óhefðbundnum hætti. Ekki neitt nýtt að læra bara taka til og skipta um skólastofu en svona er þetta. Við ætlum að leyfa henni að fara á miðvikudag til að kveðja krakkana og kennarann fyrir frí en þá er síðasti skóladagur.
Annars er bara rólegt yfir á heimilinu, Alex er duglegur að hjóla í vinnuna sem þýðir að hann er farinn héðan kl.7 og kemur seinna á kvöldin, í gær var hann óvenjulengi að vinna og kom ekki heim fyrr en kl. 20. Bráðum fer hann líka í frí, ég held að hann hafi gott af því. Nú er hann að leita að lagerprógrammi til að flokka og taka til í dótinu sem er til á lagernum.
Ég er alveg búin að vera í göngulægð síðan mamma fór, mikið skemmtilegra að fara með einhverjum að ganga, uhhuhhuhh. Var í gær að kíkja á vefinn yfir störf hjá Ríkinu hvort að skólahjúkrunarstarfið í Brekkubæjarskóla hefði verið auglýst en það var það ekki.
ÉG VIL HÉR MEÐ AUGLÝSA AFMÆLISPARTÝ SEM ÉG HELD UPP Á ÞANN 31. JÚLÍ AÐ JÖRUNDARHOLTI 15. ALLIR VELKOMNIR....
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
þriðjudagur, júlí 20, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home