Lent, komin á Skagann og búin að vígja nýja heitapottinn.
Hæ hæ eftir nokkurra daga pásu. Við erum semsagt komin á Jörundarholti 15 og búin að taka yfir hjónaherbergið. Bara eins og maður sé í höll hér, stórt rúm, flott húsgögn, þjónusta hægri vinstri og heitur pottur og ALLT. Við byrjuðum á því að fara í pottinn fyrsta daginn sem við komum og það var mjög notarlegt. Hann er með nuddi og stýringu á hitanum, hreinsidælu og ljósi. Hvaða lúxus er þetta á manni hér. Það á eftir að verða manni illmögulegt að fara heim í kotið sitt að nýju. Ég ætla nú samt ekki að hugsa út í það strax, nýkomin hingað heim.
Við fórum á kaffi Mörk í gær, en þar var dúettinn Nópí að spila en það eru þeir Óli Örn Atlason og Villi Magnússon. Við vorum mætt um leið og þeir byrjuðu að spila eða um hálf tólf. Byrjaði stuðið frekar rólega og þeir þurftu svona um hálftíma til að hitna, Villi sagði að það væri af því að lögin fremst í möppunni væru svo róleg og svona en þegar á leið á kvöldið þá hresstust lögin og þeir urðu öruggari. Ég verð að segja að þrátt fyrir að þeir séu að troða upp í fyrsta sinn á Krá þá gekk þetta vonum framar og eftir tvö var dansgólfið alltaf fullt. Það segir nú mikið. Mömmu kom verulega á óvart hve margir voru á hennar aldri. Hún væri vön að hitta nánast eingöngu skólanemendur sína þarna en í gær var fólk virkilega á öllum aldri. Það var mjög gaman að fara í gær og kom á óvart hve Alex dansaði mikið en hann er ekki vanur að dansa svona mikið á opinberum stöðum, kannski þegar það er dansað í partý eða eitthvað þessháttar en að öðrum kosti ei.
Jæja nú er undirbúningur að hefjast fyrir boðið mitt í kvöld, hlakka til að fá heimsókn. Þess vegna ætla ég að taka mér pásu í blogginu en set svo kannski inn myndir á morgun eða hinn af einhverju. Bið að heilsa ykkur, ykkar Helga
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
laugardagur, júlí 31, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home