Andrea íslandsvinkona
Það er nú alveg merkilegt hvað það eru til góðir vinir Íslands hér á meðal mannfólksins í Þýskalandi. Hún Andrea, íslandsvinur og íslenskra hestavinkona hitti mig og Alex á kaffihúsi í dag og við vorum að spjalla íslensku. Hún var í eitt ár á Íslandi fyrir 11 árum síðan og var seinast á Íslandi 1998 og talar svo flotta Íslensku að það er engu lagi líkt. Hana langaði að hitta okkur til að spjalla og var svo sorrý yfir því að hafa ekki getað hitt ömmu og mömmu þegar þær voru hér. En hún hefur svoooo mikið að gera þannig að það gekk ekki upp. Mér finnst frábært að fólk skuli hafa svona mikinn áhuga fyrir landinu okkar að ég fyllist svona föðurlandsstolti, já og hananú.
Ég veit ekki hvort ég mundi halda við málinu ef ég gæti ekki talað við nokkra manneskju á tungumálinu né verið í samskiptum við landið. Veit ekki bara smá hugleiðing.
Við Alex erum búin að vera dugleg að finna okkur eitthvað að gera, fórum í Dulmen í gær í svaka flotta sundlaug með sérstöku gufubaði, solesundlaug og venjulegum sundlaugum, úti og inni. Síðan fórum við í bíó á The day after Tomorrow. SPes mynd, mér var svo kalt á eftir. Í dag sváfum við svo út og fórum svo í góðann göngutúr. Á morgun ætlum við líka að gera eitthvað, það kemur í ljós..... bæbæí bili, ykkar Helga
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
mánudagur, júlí 26, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home