miðvikudagur, júlí 21, 2004

Afmælisbakstur
Ég er farin að huga að afmælistertu sem ég ætla að baka fyrir Alex á morgun.  Hann á afmæli á föstudaginn og þar sem hann óskar sér ekki neins í afmælisgjöf (vegna væntanlegra liggjuhjólakuapa) ætla ég að baka sérstaklega flotta tertu.  Með matarlími og alles... ég læt ykkur vita hvernig það gengur.  Ég var að leita að uppskrift á www.oetker.de og það eru aldeilis frábærar uppskriftir þar.  Bara leiðinlegt að það sé ekki mynd með hverri uppskrift.  Mér finnst skipta svo miklu máli að sjá mynd af kökunni sem maður er að fara að baka þannig að maður viti nokkurn veginn hvernig hún hefði átt að líta út.  Skrítið hvað maður er upptekinn af því að gera eins og á að gera.  Ég er ein af þeim sem geri oftast eins og er vænst af mér, hegða mér eins og samfélagið gerir ráð fyrir.  Er það veiki?

Í gær hringdi ég í lækni útaf vinnu, hann var að leita að aðstoðarmanneskju.  Þegar ég sagði að ég væri hjúkrunarfræðingur þá sagði hann strax nei hann hefur ekki áhuga.  Hvað er málið, er maður óþarflega mikið lærður eða hefur hann einhver slæm vinnubrögð sem hann vill ekki að hjúkrunarfræðingur sjái og gagnrýni, ég vil trúa því síðara.  Ég gef ekki upp vonina að ég finni einhverja vinnu, held að það sé orðið tímabært að ég finni mér eitthvað starf.  Annars enda ég bara sem eitthvað vorkunarsamt stórfleyti....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters