Nína farin
Hæ hæ og hó, já Nína fór áðan með ópa Manfred og Waltraud í heimsókn fram á fimmtudag en þá hittumst við á flugvellinum í Frankfurt þar sem við munum fljúga til Íslands saman. Það er nú alveg frábært að fá nokkra daga án Nínu en svo verður gaman að fá hana aftur þegar fríið hjá afa er búið.
Alex er meira segja í fríi alveg þangað til 10.ágúst núna þannig að við getum bara þess vegna farið eitthvað. En við verðum sennilega mest hér heima við, gott veður og svona, fínt að vera bara úti á palli í sólbaði eða eitthvað þessháttar. Mig langaði helst að fljúga eitthvað í frí, til Ítalíu eða Frakklands eða eitthvað en náði ekki að fá Alex á mitt band. Hann segist þurfa hvíldina!!! Kannski förum við samt eitthvað, til dæmis að norðursjó yfir eina nótt eða eitthvað slíkt.
Afmælistertan var jógúrt-rjómaterta með mandarínum og súkkulaði á súkkulaðitertubotn. Hún varð MJÖG stór og við náðum ekki að klára hana, þótt við hefðum öll reynt að borða eins mikið og við gátum. Nína bakaði súkkulaði rúllutertu með hvítu kremi, alveg ein og tókst ljómandi hjá henni. ALex var auðvitað mjög ánægður með árangur okkar mæðgna og borðaði með bestu lyst. Um kvöldið eldaði ég svo mitt fyrsta lambalæri og heppnaðist það líka mjög vel hjá mér.
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
laugardagur, júlí 24, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home