Hæhæ, maður er bara alltaf að jafna sig eftir eitthvað. Ég mæli með Snorrastöðum á Mýrum hjá Eldborg ef einhvern langar með hóp í bændagistingu nálægt höfuðborgarsvæðinu. Svefnpláss fyrir 26 manneskjur og hægt að fá fleiri dýnur, pottur, þrjú salerni, eldhús með risa borði, hestaleigu og á sem eflaust væri hægt að veiða síld í.... Segi svona en hún Nína er á leiknámskeiði núna og þau fóru í gær upp í skógrækt að veiða síli og hún var svaka ánægð þegar hún sagðist hafa veitt 15 síld. Í dag á að fara á langasandinn og ég mæli með því að fólk fari þangað í dag hafi það ekki neitt fyrir stafni. Í gær þegar ég gekk þar framhjá var allt fullt af´fólki þar með handklæði og sumir að vaða , sumir að synda og aðrir bara að sóla sig á ströndinni. Skaginn er nú algjör paradís ÞEGAR ÞAÐ ER GOTT VEÐUR n.b.
Í næstu viku ætla ég svo í bæinn og gisti hjá Þóru á stúdentagörðunum, hlakka til að hitta alla.
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
miðvikudagur, ágúst 11, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home