fimmtudagur, ágúst 05, 2004

Sæl kæru vinir.
Nú er maður búinn að jafna sig eftir mikla veisluhelgi og mikið gaman. Á laugardeginum komu hingað um 35 manns í boð. Það var mjög gaman og skemmtileg stemming sem skapaðist. Þetta var mestmegnis frændfólk mitt úr Reykjavík og vinir mínir héðan og úr Reykjavík. Óli bróðir minn og vinur hann spiluðu í tæpan klukkutíma við mjög góðar undirtektir. Eftir mat og tiramísú sem Alex gerði var svo spilað á gítar og sungið. Síðustu tvo tímana vorum við svo bara nokkur eftir að kjafta saman og syngja og það var MJÖG gaman hjá okkur. Rauðvínsflöskurnar tæmdust eins og ekkert væri þrátt fyrir að einungis tvær þyrstar hjúkrunarkonur væru að drekka, hinir héldu sig við áfengislaust eða bjór.
Á sunnudeginum var maður svo að safna kröftum og á mánudeginum gerðum við lítið annað en að fara í sund með Nínu og Hlyn (ég og Alex) og það var líka fínt. Það er alltaf svo sérstakt að koma heim og fara í sund finnst mér. Í heita pottana og synda í heitri lauginni og svo alltaf stemming í að hitta mann og annann. Á þriðjudeginum fórum við svo til Reykjavíkur að hitta Andreu sem er þýsk stelpa sem lærði aðeins íslensku hjá mér í Þýskalandi. Hún er búin að vera hér í 11 mánuði og talar svo flotta íslensku. Hún er að leita sér að herbergi í Reykjavík, ætlar að fara í háskólann og er kominn með vinnu á Hrafnistu í Reykjavík. Gaman þegar maður sér að henni líður svona vel á landinu okkar. Svo fórum við aðeins til Þóru systur og heimsóttum kisuna Skvísu, gaman að því. Já og dagurinn endaði á því að við fórum í mat til Önnu Siggu og Ragnars Stefáns en þau búa nánast við hliðina á Grafarvogssundlaug, flottur staður og flott hús. Við skemmtum okkur reglulega vel saman og ræddum allt á milli himins og jarðar. Takk fyrir okkur Í gær fórum við svo í mat til Heiðrúnar og Kristleifs, það var indverskur matur (sem finnst í dag af manni) og það var mjög sérstök upplifun. Maður borðar með hægri hönd og bara með puttunum. Mjög sérstakt og það gekk bara alveg með ólíkindum vel að borða með fingrunum. Takk fyrir góðan mat og skemmtilegt kvöld. Nú verður maður að fara að finna einhverjar góðar indverskar uppskriftir........ AMK er ég þá komin með eitthvað að gera....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters