Nína farin og ekki neitt stress.
Nína fór í sveitina í gær, svaka ánægð, beint til hestanna að gefa þeim eitthvað að borða. Ég keyrði hana en hún verður fram á föstudag á bænum Foss á Snæfellsnesi hjá Helgu Maríu. Ég nota auðvitað tækifærið og geri eitthvað sem gott er að gera án barns og manns. Já skelli mér til Reykjavíkur. Er nú mætt til Þóru og verð hér eitthvað fram eftir vikunni.
Í gær á leiðinni til Akranes eftir að hafa skilað Nínu af mér kom ég við hjá Önnu og Daniel en þau verða þrjár vikur í bústað á Indriðastöðum við SKorradal. Það var gaman að heimsækja þau og var að sjálfsögðu líf og fjör á þeim bænum. Kannski næ ég að heimsækja þau einu sinni enn áður en við förum í næstu viku aftur heim til okkar.
Alex er búinn að útbúa uppskrifasíðu en einungis á þýsku ég þarf að þýða yfir á íslensku og geri það bara þegar ég kem heim og hef nógan tíma.
bið að heilsa ykkur
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
mánudagur, ágúst 16, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home