OOOHHHHH
nú er tíminn bráðum búinn....
Það er búið að vera svoooo gaman á Íslandi að heimsækja alla. Ég er bara alveg búin að fylla allar rafhlöðurnar og fer endurnærð aftur heim til Þýskalands. Ég naut þess alveg ofboðslega að vera í Reykjavík að heimsækja marga og búa á fallegu heimili Þóru í 50 og eitthvað fermetrum. Hún er reyndar búin að vera að læra þannig að ég hef bara verið að gera eitthvað allann tímann. Mér finnst bara mjög gaman að vera í Reykjavík, fylgjast með mannlífinu og sjá hve margt hefur breyst. Mjög margir útlendingar eru í borginni um þessar mundir og mér finnst ég alveg eiga heima þarna ennþá. Fór oft og oft framhjá Dunhaganum en held að allir séu fluttir þaðan sem ég þekkti.
Ég er orðin það mikill útlendingur í mér að ég verð að segja ykkur eitt. Ég fór í strætó sem er nú ekki frásögufærandi nema að ég ætlaði að greiða fyrir farið með fimmhundruð króna seðli. Rétti bílstjóranum peninginn og segi:,, Ég á tuttugu ef það er betra". Hann horfir á mig alveg furðu lostinn. Ég alveg gefur þú ekki til baka. Hann:,, Nei það gerum við ekki og höfum aldrei gert". Ég alveg í sjokki..... HAAAAA. og er alveg bara ekki að ná þessu. Sný mér að farþegum í strætó og spyr með alveg rosa sorglegum svip. Getur einhver skipt? Ein kona tekur upp veskið sitt og þykist kíkja en segir svo:,, Nei því miður". Ég alveg OOOHHHHH. Spyr svo strætóbílstjórann heyrðu get ég ekki fengið strætómiða fyrir afganginn. Hann greinilega ekki alveg að fíla mig og bara NEI. Ok segi ég, ÞETTA VERÐUR NÚ DÝR STRÆTÓFERÐ!!!!!!! Hann alveg að fríka út, lítur á mig og segir hálfum hljóðum, farðu bara inn EN MUNDU ÞETTA NÆST!!!!!&%$*****
Helga Atlad. bloggar frá Akranesi
Daglegt líf fjölskyldunnar og vangaveltur
föstudagur, ágúst 20, 2004
Site Counters


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home