sunnudagur, febrúar 27, 2005

Heimsókn og spil

Ohhh það er búið að vera svo gaman hjá okkur. Ótrúlega er gaman að fá gesti. Ég sver það að það lífgar upp á tilveruna þegar maðurinn manns er nýbúinn að vera í burtu, þegar barn manns er búið að vera með flensuna og veðrið heldur ekki upp á marga fiska, eða var það diska?

Amk erum við búin að láta okkur líða vel, borða góðan mat, drekka gott rauðvín og bjór, spila Wizard, og 6 Nimmt, spila á gítar og syngja því Atli vissi um síðu á netinu þar sem maður getur fengið alla texta til að syngja með og þar sem við erum með sjónvarpið tengt við tölvu niðri þá gátu þau sungið og ég spilað á gítarinn. Að vísu var takturinn ekki nógu markviss í nokkrum lögum að því er áhorfendum fannst en það er nú ekki aðalatriðið. Það skiptir jú mestu að vera með er það ekki annars. Æi gleymdi ég að láta þau hafa hristu svo þau gætu hugsað um eitthvað annað en að taka eftir taktinum.... Já og svo minntist einn áhorfandanna á að rödd mín væri ekki alltaf góð en það væri skiljanlegt því það væri mjög erfitt að syngja rétt og spila á gítar, hmmm, ég veit ekki alveg hvernig ég á að taka þessu. En ég læt ekki buga mig, því MINN TÍMI MUN KOMA, eh, eh, eehhh.... æi maður á ekki aðvera að nota eitthvað sem maður er ekki góður í, alveg eins og FYrrrigeff´u

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters