fimmtudagur, febrúar 03, 2005

Weiberfastnacht

Er virkileg hátíð í augum margra þýskra kvenna. Eini dagurinn og nóttin þar sem þýskar konur geta gert það sem þær lystir. HVernig hver kona útfærir svo þessa gleði er á hennar eigin ábyrgð. Margar hverjar klæðast skrípóbúningi og mála sig í framan og fara út í bæ. Í skrúðgöngu og á akandi pöllum kastandi karamellum og alls kyns góðgæti, drekkandi snafsa og freyðivín og bjór og dansandi gleði.

Ég tilheyri engum slíkum hópi hér en það er mjög gaman að horfa á þegar þetta á sér stað. Annar svona dagur er svo á mánudaginn en þá eru bæði konur og menn saman að skemmta sér. Sumir eru með vinum sínum, aðrir með kunningjunum úr íþróttahópinum og svo frameftir götunum. Minna er um að krakkar fari í búðir að syngja eða eitthvað svoleiðis.

Nína má fara á morgun í leopard búningnum sínum og máluð í framan í skólann á morgun. Hún var að baka kanilsnúða, (ekki gerdeigs) til að taka með í skólann á morgun. Það verður bara föndrað og leikið sér. Það á örugglega eftir að vera gaman fyrir þau þar sem undanfarinn tími í skólanum hefur verið ansi strembinn útaf þessu meðmæli sem þau þurftu að fá.

Í vinnunni er gaman, um helgina á ég frí og þá fáum við Nína heimsókn með hund, úúúuuu. Bið að heilsa ykkur....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters