Í Nýju vinnunni
Engar áhyggjur ég er ekki farin að vinna á vændishúsi eins og sumar konur sem fá atvinnuleysispening í Þýskalandi fara kannski að neyðast til núna!! Já það var frétt í morgunblaðinu þess efnis að tæki maður ekki vinnuna þá fengi maður ekki atvinnuleysispening áfram! Spáið aðeins í þessu.
Ég var í fyrsta sinn í dag í nýju vinnunni minni sem er einkarekin heimahjúkrunarvinna. Þar starfa um 15 starfsmenn sem eru allir í hlutavinnu. Starfið felst í meðferðarhjúkrun að stórum hluta en líka í grunnhjúkrun eða það að þvo fólki. Við mjög misjafnar aðstæður heima við eða hjá aðstandendum. Við byrjum klukkan átta á morgnana og erum að vinna að mesta lagi til 12 á hádegi sem er auðvitað glæsilegur vinnutími, ekki neitt við því að segja. En ég er meiri karakter í svona akút dæmi, helst hasar þar sem allt er upp á líf og dauða! Auðvitað aðeins ýkt en samt, það verður að vera eitthvað í gangi, sem er ekki í heimahjúkruninni, þar er allt eins í tíu ár eða allt að því! En ég er mjög sátt eftir fyrsta daginn, hress og skemmtileg kona sem var með mig í dag í aðlögun og verður á morgun líka. Vinnan er líka ágætlega borguð og það er líka mikilvægt.
Svona á milli hluta þá vorum við í kennaraviðtali í gær og Nína fer í fjölbraut, kennararnir ráðlögðu okkur það og við ætlum etv að senda hana í Biskupsfjölbrautarskóla sem er með trúarleg og hugleiðslu og tónlistar markmið ásamt auðvitað öllu því sem viðkemur námi! En við erum ekki alveg búin að ákveða okkur.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home