Hlynur afmælisdrengur í gær
Hann Hlynur Björn frændi minn, eina systkinabarnið í fjölskyldunni sem er karlkyns og því uppáhalds frændi minn. Líka fyrir það hvað hann er mikil dúlla og orðheppinn náunginn. Hann átti afmæli í gær, er nú orðinn löglega skólafær og spenntur fyrir skólanum geri ég ráð fyrir. Byrjaður að lesa og skrifa og bara hinn myndarlegasti drengur. Til hamingju elsku bróðir og til hamingju með daginn elsku Hlynur.
Ég er á kvöldvöktum þessa vikuna, sem er fínt því þá get ég sofið út á morgnana, fer aftur upp í rúm eftir að Alex og Nína eru farin. Æ lofit. Annars er það ótrúlegt hvað veðrið er heimskautslegt hjá okkur þessa dagana, alveg brjáluð snjókoma og hrikalega kalt. Það mældist mest 29 stiga frost í Þýskalandi í fyrradag, haldiði að það sé. Það hefur ekki mælst svona kalt í hundrað ár. Ætli það hafi ekki verið seinast svona kalt í Evrópu þegar hægt var að skauta fyrir fjörð, nema það var svo kalt að fólk fraus á miðri leið!!! Nei djók.
Nína fór fyrir mig útí bæ í gær, sem er nú ekki frásögu færandi, að kaupa kaffi og te. Nema hvað hún ætlaði að fara með nágranna hundinn og fór héðan út og var tilbúin en hundurinn var ekki heima. Þannig að hún ætlaði að koma aftur heim og sækja hjólið sitt og fara bara á hjólinu í snjónum! Allt í lagi með það, hefði hún ekki læst lyklana sína inni! Hurðarnar eru þannig að það er ekki hægt að opna þær utanfrá þannig að hún þurfti að fara til nágrannana og fá lyklana sem við geymum hjá þeim til að komast inn og sækja lyklana og hjólið sitt. Svo loksins fór hún út í bæ. Á bókasafnið, á pósthúsið (að segja þeim að keðjubréfið sem hún sendi sex stelpum tefjist hjá einni þeirra því hún fékk ekki leyfi til að senda sex frímerki, pósthússtarfsfólkið sýndi þessu ákaflega mikinn skilning!!!), í bókabúð að kíkja á nýja fjöður á pennann sinn og að kaupa te og kaffi. Svo skrifaði hún mér greinargerð sem ég skemmti mér mjög við að lesa eftir vinnu!!! Hún er algjör hetja og það er held ég fátt sem hún treystir sér ekki til að gera! Æði.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home