fimmtudagur, mars 03, 2005

Nú verður ekki aftur snúið

Ég á flug bókað 19.apríl til Íslands frá Amsterdam og aftur heim 24.apríl, á sunnudegi. Það á eftir að verða gaman á árgangamótinu.

Þetta er nú meira vesenið hér í sambandi við skóla eftir fjögurra ára grunnskólann. Börnin eru semsagt í eina og sama bekknum að öllu jöfnu í fjögur ár. Á miðju skólaárinu í fjórða bekk fær hvert barn ráðleggingu um það í hvaða skóla barnið ætti að fara í. Nú og svo er það þannig að foreldrar fara ekki eftir þessum ráðleggingum. Sem þýðir fyrir okkur að skólinn sem við vorum búin að ákveða að Nína færi í, hann fylltist á fyrsta skráningardeginum. En hallærislegt segi ég nú bara og þar eru þá einhverjir krakkar sem eiga ekki heima á þessu skólastigi og detta kannski hvort sem er úr skólanum eftir eitt eða tvö skólaár. Nína þarf þá að fara í annan skóla, sem eflaust er ekki neitt verri en það er bara leiðinlegt því núna er þetta ekki lengur okkar val.

Eitt langar mig að minnast á hér og fá viðbrögð ef einhver eru! Nína fékk sent keðjubréf fyrir stuttu. Keðjubréfið var frá vinkonu hennar. Í keðjubréfinu stóð að Nína þyrfti að senda sex krökkum bréfið (sem var á þýsku) og þar að auki eitt póstkort til þess sem stóð efst á listanum, það voru fjögur börn á lista. Nína gerði þetta samviskusamlega og fór með það á pósthúsið. Það kom fram í bréfinu að það þyrfti að póstsenda með póst og síma því þeir mundu skrá hjá sér eitthvað til þess að keðjan kæmist svo einhverntíma í heimsmetabók Guinness. Svo er núna svaka vandamál hér í bekknum því stúlkan sem Nína sendi eitt af bréfunum má ekki senda bréf í pósti, kostar á bréf 0,55 Evru. Mamma stúlkunnar hringdi og spurði hvað foreldrum Nínu fyndist eiginlega um þetta allt saman! Hvað er málið? Ég er ekki alveg að skilja hvaða mál þetta er. Okei, Nína lét þá aðra stúlku fá bréfið og hún má ekki heldur senda bréfin! Er þetta FALIN MYNDAVÉL?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Website Counter
Site Counters