Vinnuhelgi
Hæ hæ
Ég er orðin svo góðu vön með að vera í fríi um allar helgar. Mér finnst leiðinlegt að vinna um helgar.
Það er enn snjór hjá okkur, Alex g Nína fóru að renna í gær og það var svaka gaman hjá þeim, ég var að vinna. Í dag fórum við í svaka göngutúr í yndislegu vetrarveðri. Það er algjör lúxus þegar það er engin vindur, þið ættuð að prufa þetta þið sem heima á Íslandi sitjið.
Á morgun er stefnan tekin á fjölskyldusund, það verður gaman, með sauna og alles. Gaman gaman, ég ætla að kveðja að sinni og óska öllum góðrar helgar í faðmi sinna nánustu.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home