ýkt
Frekar ýkt myndin af Nínu í of stórum Hollands klossa, ALLOF stór hjá mér. Ég er algjör hobbý netaljósmyndasýnari. Þannig að ég fer í properties og copya myndarslóðina og set hana svo inn hjá mér, híhíhí... Við áttum eitthvað prógramm til að setja inn á netið en ég finn það ekki lengur... Kannski nenni ég bara ekki að finna það, það er líka fínt.
Hún Amma Lilla átti afmæli í gær, 5.apríl hún varð 78 ára gömul. Til hamingju amma.... ég veit samt að hún á ekki eftir að lesa þetta en samt, þetta er skemmtilegt. Mars, Apríl, Mai (og jan) eru aðal afmælimánuðir fólksins sem ég þekki. Ég meina auðvitað á fólk líka afmæli í öllum hinum mánuðunum en þetta er samt áberandi. Í mars er Hlynur, Amma Sigga, Lúlli, Kristleifur, Snorri, Anna B, Daniel. Í Apríl Kristine Eck, Amma Lilla, Nína, Aggi, Óli, NOnni, Silli, Baddý, GUnnur Hj., Lilly, Hendrik. Í Mai, ég, Þóra, Christoph, Martin, JAn, Maja, Colker, Josef nágranni, Birgit nágranni. Já þetta er ansi merkilegt....
Nóg um það í bili.
Það sem á hug minn allann þessa vikuna er að sofa út og gera klárt hér á heimilinu fyrir heimsókn margra íslenskra kvenna sem eru búsettar í Þýskalandi. Já við ætlum að hittast hér heima hjá mér á sunnudaginn í kaffi og kökur. Það er eins gott að vera hvorki meira né minna en með míní fermingarveislu, það þýðir ekki neitt annað fyrir íslenskar konur. Nei þettaer djók hjá mér. En ég ætla að gera gulrótarköku í fyrsta sinn, úr Kökubók Hagkaups hefur einhver bragðað á henni? Svo ætla ég að gera brúna köku a la amma lilla. Það fer eftir því hve margir koma hvort ég geri eitthvað meira, hér er beðið um ráðleggingar hvað mundi passa vel við!
Bið ykkur vel að lifa vinir og vinkonur.... :þ


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home